Hugsum sjálfstætt

 

Ýmis konar hugmyndir eru uppi um það hvernig slá megi á kreppuna. Reyndar eru skuldir svo óheyrilegar að fólki fallast hendur við að átta sig á hvernig megi bregðast við.

Það er gömul og góð fyrirhyggja að ágætt sé að spara þegar harðnar í ári.

Það þarf að huga að því að minnka innflutning og auka útflutning. Nota almenningssamgöngur, kaupa íslenskt og skemmta sér íslensk. Löðum að ferðamenn og nýtum þær fjárfestingar sem falla til.

Ísland er ríkt af gæðum og því er hægt að lifa hér góðu lífi án þess að eyða um efni fram. Grípum til sértækra aðgerða þar sem það á við. Látum furstana skila arðinum að auðæfunum. Notum dómgreindina. Við þurfum ekki að keyra í förum sem aðrir hafa lagt. En seljum ekki auðlindirnar! Það eiga komandi kynslóðir ekki skilið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband