Þátttakendur eða þolendur

Nú er verið að undirbúa mótmæli við Austurvöll á morgun. Áhersla er lögð á að mótmæla þaulsetu seðlabankastjóra en fólk ætti að beina sjónum sínum að fleirum. Það þarf að brjótast út úr viðjum þess hugarfars sem hér hefur verið ríkjandi og ná til almennings. Eflum gagnrýna hugsun. Byrjum á því að kenna börnunum okkar að trúa ekki öllu sem þau heyra.

 http://www.nyirtimar.com/

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er gott að lesa þínar skynsamlegu athugasemdir og ekki síst að þú minnist á nauðsyn þess að kenna börnunum gagnrýna hugsun. Það hefur ekki beinlínis verið forgangsverkefni í íslenskum skólum, því miður. En það er auðvitað undistöðuatriði ef ekki á að teyma almenning á asnaeyrunum annan hring í dansinum kringum gullkálfinn og afhenda honum svo aftur reikninginn þegar partýið er búið. - í sambandi við fundinn á Austurvelli er athyglisvert að sjá fréttir af mannfjöldanum í fjölmiðlunum, ég stóð þarna á pallinum og horfði yfir fjöldann sem var mun meiri en 500 manns. Það er erfitt að giska á raunverulegan fjölda, en ég get ekki ímyndað mér að það hafi verið færri en svona 1500-2000 manns þarna samankomnir. Hvenær fór fram talning hjá lögreglunni - ætli tölurnar séu ekki þaðan? Hverjum er í hag að draga úr tölum um mannfjölda? Hittumst aftur á Austurvelli næstkomandi laugardag og látum raddir skynseminnar hljóma!

Ragnheiður Gestsdóttir (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband