Óvægin áróðursmaskína

 

Áróðursmaskínan er óvægin og endurspeglar grunnhyggni þeirra sem að henni standa. Nú á fólk að vakna hamingjusamt á morgnanna og vera þakklátt fyrir góða heilsu, samvistir við fjölskyldu, vini o.s.frv. En hvað með þá sem búa ekki við góða heilsu, eru fjarri fjölskyldu o.s.frv. eru þeir ekki að lenda í kreppunni? Mega þeir ekki vera glaðir líka?

Segjum við þá sem lenda í kreppunni: þið eigið enn ykkur sjálf. Þið hafið frelsi til hugsunar og athafna. Látið ekki taka það af ykkur líka. Virkið sjálfstæði ykkar til þess að bæta ástandið. Þetta ástand er ekki boðlegt, kallið á breytingar!

Látum ekki stjórnvöld nauðga tungumálinu okkar með því að kalla að það að láta menn standa skil á gjörðum sínum „nornaveiðar". Nornaveiðum var hér áður fyrr beint gegn sjálfstæðum konum og körlum af lítilsigldum einstaklingum sem nýttu sér hjátrú og fáfræði almennings. Vel upplýstur og vel menntaður almenningur krefst þess nú að þeir sem hafa rústað fjárhag landsins standi skil á gjörðum sínum og það á ekkert skylt við nornaveiðar.

Við viljum heiðarleg fólk og fólk sem virðir merkingu tungumálsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband