Fortíð landsfeðranna gerir þá hættulega þjóðinni

 

Skyndilega hefur almenningur vaknað upp við það að veruleiki hans var tálmynd. Stofnanir sem almenningur hefur treyst reynast vera spilaborgir sem höfðu á sér virðulega ásýnd. Landsfeðurnir eru spillt klíka sem hefur notfært sér vald sitt til þess að skara eld að köku sinni og treysta límingarnar við valdastólanna. Þeir geta ekki hróflað við neinu vegna þess að þeir vita of mikið hver um annan. Þeir sitja fastir í spillingarferlinu.

Fortíð landsfeðranna gerir þá hættulega þjóðinni. Þeir berjast nú fyrir hagsmunum sem er mengaðir af viðleitni þeirra til þess að bjarga eigin skinni.

Tilhugsunin um að við sitjum nú föst í gjörspilltu kerfi sem nú er knúið áfram af þeim sem í ljósi reynslunnar munu eingöngu hyggja að því að bjarga ásýndinni með óheyrilegum fórnum vekur ugg.

Mikil viðleitni hefur verið undanfarið við að leiða hug almennings frá því sem í raun er að gerast. Menn makka nú bak við tjöldin og trúa því að fólk kyngi slagorðum þeirra. Þeir misnota tungumálið okkar eins og þeir hafa misnotað almenning, náttúru landsins og embætti sín.

Nú er nóg komið!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband