Fimmhundruð milljarðar króna fuðra upp

 

Þetta kom fram á blaðamannafundi með forsætis- og utanríkisráðherra

Ríkisstjórnin spáir því að krónan mun styrkjast eftir að hundruð milljarða gjaldeyrislán frá IMF og Norðurlöndunum fuðri upp.

Það kom fram í máli forsætisráðherra að ríkisstjórnin geri ráð fyrir því að krónan muni falla vegna þess að þegar að gjaldeyrir berist seðlabankanum munu fjárfestar leysa út Jöklabréf og hverfa með gjaldeyrinn úr landi. Að því loknu mun krónan að mati forsætisráðherra styrkjast.

Forsætisráðherra kallar þessa mynd sem hann dregur upp af framtíðinni hagfræði. Til þess að spá fyrir um afdrif krónunnar þurfa spádómsmenn að gefa sér forsendur um hegðun aðila. Hagfræðingar eru þekktir fyrir að byggja fræði sín á sögunni, þess sem vitað er úr fortíðinni. Aðstæður í dag eru ekki sambærilegar við neinar sem þekktar eru úr fortíðinni.

Ég tek því undir með Heimi Má sem spyr ráðherra hvort hann sé að segja rökkursögur.  

Hversu háar fjárhæðir skulda bankarnir eigendum Jöklabréfa og annarra bréfa sem fjárfestar munu sækjast eftir að umbreyta í erlendan gjaldeyri og hverfa með úr landi?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Eru það hagfræðingar sem spá þessu?  Ég trúi ekki talsmönnumm Seðlabankans lengur...

Vilborg Traustadóttir, 18.11.2008 kl. 10:25

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

úff

Hólmdís Hjartardóttir, 18.11.2008 kl. 13:19

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Spáin um að fall krónunar aukist felur í sér að ráðamenn geri ráð fyrir að nú hlauði eigendur jöklabréfa og fl til og selji bréfin og skipti í gjaldeyri sem síðan verði farið með úr landi. Þetta þýðir væntanlega að gjaldeyrinn gufar upp (hundruð milljarða lánin)

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.11.2008 kl. 13:24

4 identicon

Við getum verið nokkuð viss um að þegar IMf lánið skilar sér og gjaldeyrismarkaður opnar á eðlilegum nótum þá fara einir 300 milljarðar strax fyrir hádegi, kannski meira. Jöklabréfin margfrægu. Úpps!

Arinbjörn Kúld (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 20:17

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já og á þá að taka meiri lán?

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.11.2008 kl. 20:33

6 identicon

Já, sorry, þá förum við að draga á lánalínur frá öðrum, það segir Geir. Svona verður það þar til allir útlendingar sem eiga hér bréf, hvaða nafni sem þau nefnast eru farin.

Arinbjörn Kúld (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 20:40

7 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Það er verið að færa skuldir bankanna yfir á ríkið með þessu!

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.11.2008 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband