Situr dóttir forseta Íslands í stjórn Haga með Jóni Ásgeiri?

Sjá nánar um þetta hér

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er farin að sjá að höfuðborgarsvæðið er afar lítið miðað við öll þessi tengsl sem maður sér hér og þar s.s. krosseignarhald og stjórnarseta samanber þetta dæmi. Er hægt að nefna einn landsbyggðarmann sem býr og starfar norðan Hvalfjarðar og austan Hellisheiðar sem er hluti af spillingarliðinu. Þá á ég við einhvern sem er fæddur og uppalin á landsbyggðinni og starfað þar mest alla sína tíð?

Arinbjörn Kúld (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 21:32

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Það er nú kannski eitthvað til í því sem þú segir svona þegar maður fer að hugsa út í það. Það ætti kannski bara að banna Reykvíkingum að fara á þing Annars er forsetinn að vestan eins og ég er að hálfu

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.11.2008 kl. 21:47

3 identicon

Æi, þetta var bara svona skyndihugdetta, ekkert alvarlegt á bak við það. Datt þetta svona í hug. Fannst þetta dáldið undarlegt.

Arinbjörn Kúld (IP-tala skráð) 18.11.2008 kl. 23:05

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það er mikið talað um spillinguna núna og sjálfsagt er hún mikil. Mér finnst að þetta mikla spillingartal þar sem rætt er um fjárfestana og allt sem þeim við kemur. sé til þess fallið að þyrla upp miklu moldviðri til að fela þá ábyrgð sem gömlu stjórnmálaflokkarnir bera í þessu máli.

Þar er ég að tala um Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk. Þeir sátu saman við völd í 12 ár og það er á þeim tíma sem verið var að laga þjóðfélagið að því sem við bjuggum við frama að hruninu. Þar voru leikreglurnar samdar og löggjöfinni breytt til samræmis við það sem þótti heppilegast.

Verið var að gera upp gömlu stóru klíkurnar og skipta góssinu. Davíð Oddsson var lengst af forsætisráðherra, þó Halldór Á fengi aðeins að prófa líka.

Sú ríkisstjórn sem nú situr ber vissulega ábyrgð og þá sérstaklega Sjálfstæðismenn. Samfylkingin er ungur flokkur sem er að koma að stjórnarborðinu vorið 2007. Flórinn hefur verið gríðarlegur og moksturinn tafsamur. Gamli forsætisráðherrann sat líka í Seðlabankanum og stjórnaði eftir sínu höfði með vernd núverandi forsætisráðherra.

Nú er aðalkrafan á Samfylkinguna sú að málefnum sé ekki fórnað fyrir ríkisstjórnarsamstarf. Ég hef reyndar ekki mikla trú á að Samfylkingin geri slíkt, en á það ber að líta að IMF lánið er að komast í höfn og önnur aðstoð líka.

Við skulum sjá til eftir morgundaginn eða hinn hvort eitthvað skeður.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 19.11.2008 kl. 01:59

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég skrifaði um samstarf sjálfstæðsisflokks og framsóknar hér fyrr á blogginu. Þeir eru ábyrgir fyrir því að á Íslandi er mestur ójöfnuður á vestrænni grundu. Einnig eru þeir arkitektar ný-frjálshyggjunar sem núverandi ríkisstjórn tóks endanlega að snúa í andhverfu sína.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 19.11.2008 kl. 12:24

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Samfylkingin er jafnsek og sjálfstæðisflokkurinn í dag. Datt beint ofan í vasa sjálfstæðismanna. Tók sér hann til fyrirmyndar í valdabrölti sínu. Auðmenn eiga samfylkinguna í dag rétt eins og sjálfstæðisflokkinn.

Það eru margir trúir jafnaðarmenn innan samfylkingar en forystan hefur brugðist og spilað eftir nótum nýfrjálshyggjunar.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 19.11.2008 kl. 12:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband