Jóhanna; rektu bara manninn!

Það er komið í heimsfréttirnar að Davíð Oddsson hunsar forsætisráðherra í viðleitni hennar til þess að koma honum frá.

Satt að segja skil ég ekkert í því hvað verið er að púkka upp á þennan mann. Það á bara að fara eftir lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna og reka hann.

Ég velti fyrir mér hvort Samfylkingin vilji ekki skapa svoleiðis fordæmi sem er eindæma heigulsháttur.

 Jóhanna sýndu nú að það sé töggur í þér og rektu bara manninn

Það þarf líka að reka hæstarétt sem er í eigu sjálfsstæðisflokksins og þar af leiðandi gjörspilltur

Þessi þjóð á skilið eðlilegt valdakerfi


mbl.is Eiríkur og Ingimundur hafa svarað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

En hvað með sjálfstæði seðlabankans, á bara að reka formann bankastjórnar af því nokkurhundruð manna skríll heimtar það og lemur potta og pönnur? Það gilda lög í landinu um hvernig eigi að reka embættismenn og forsætisráðhera, sama hversu sturlaður hann er, verður að fara eftir þeim óháð hvað nokkur hundruð manna skríll æpir.

Viðar Þorsteinsson (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 20:22

2 Smámynd: Offari

Það má ekki reka menn nema þeir hafi gerst brotlegir í starfi.

Offari, 6.2.2009 kl. 20:24

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já en hvað með sjálfstæði þjóðarinnar? Skiptir hún engu máli?

Það á bara að reka hann eftir þeim lögum sem hægt er að reka hann eftir og skapa með því gott fordæmi.

Það er ekki hægt að vera með andskotans vitleysinga í yfirstjórn stofnana

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.2.2009 kl. 20:26

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Hrædd um að hann hafi gerst brotlegur

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.2.2009 kl. 20:27

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

.....oft

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.2.2009 kl. 20:28

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

óhæfur í starfi

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.2.2009 kl. 20:28

7 identicon

Ef að þeir hefðu gert eitthvað af sér, þá hefði ekki þurft að biðja þá um að segja upp. Bréf Jóhönnu er staðfesting þess að þeir hafa hreinan skjöld.

Viðar Þorsteinsson (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 20:34

8 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Samkvæmt lögum um opinbera starfsmenn þurfa þeir að gerast brotlegir í starfi til þess að hægt sé að reka þá.  Slíkt hefur ekki verið rannsakað og sannað á bankastjórana.

Hin leiðin er að segja þeim upp vegna skipulagsbreytinga og þess vegna er ríkisstjórnin að breyta skipulagi Seðlabankans þannig að það sé einn bankastjóri sem verði að hafa meistarapróf í hagfræði!

Núna er samfylkingin því í raun að setja lög um einn mann á sama hátt og Davíð ætlaði að setja fjölmiðlalögin til höfuðs Baugi og Jóni Ásgeiri á sínum tíma.  Þetta er auðvitað verulega sjúkt.  Auðvitað geta bankastjórar í Seðlabankanum haft aðra menntun en hagfræði.  Það eru hundruð hagfræðinga í seðlabankahúsinu og í raun full ástæða til að sjónarmið fleiri komi fram þar innandyra.  Þetta er auðvitað bara bull.

Hins vegar á Davíð að sjá sóma sinn í því að fara frá.  Það er eðlilegt að skipt sé um fólk í lykilstöðum eftir svona áfall.  Ef þetta er eina leiðin þá verður að fara hana þrátt fyrir að hún sé sjúk og vægast sagt skelfileg stjórnsýsla.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 6.2.2009 kl. 20:34

9 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ef framferði Davíðs Oddsonar eftir hrunið er ekki brotlegt hvað er þá brotlegt. Ótrúlegur heigulsháttur að þora ekki að taka á þessu máli. Menn fela sig á bak við allskonar kjaftæði um rannsókn en maður hefur brotið af sér í beinni útsendingu. Það að gerast brotlegur í starfi hlýtur að þýða að hann hafa skaðað stofnun sína eða viðskiptavini með framferði sínu og það hefur hann tvímælalaust gert.

Þetta er blekkingaleikur valdhafanna sem ekki vilja sjá sprungu í valdamúrnum.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.2.2009 kl. 20:41

10 Smámynd: Offari

Haus minn hringsnýst um hvað sé satt og hvað sé logið. Ég hef hinsvegar aldrei heyrt fyrir hvaða brot það séu sem gera hann brotlegan í starfi.

Ég vill hinsvegar að hann hætti því það kerfi sem hann styður hefur runnið sitt skeið og ég tel það vonlaust að endurlífga kerfi sem menn hafa vantrú á. Ég vill líka losna við hann til að fá frið fyrir deilum sem tefja úrbætur.

Offari, 6.2.2009 kl. 20:49

11 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Einkennilegt hve mikil tök þessi eini maður hefur á samfélaginu. Hverning stendur á þessu?

Arinbjörn Kúld, 6.2.2009 kl. 20:55

12 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

það er ekkert einkennilegt við þetta. Jóhanna þorir ekki að reka hann af því að þá skapast fordæmi fyrir því að hægt sé að reka embættismenn sem hingað til hafa verið ósnertanlegir. Hún vill ekki að það komi sprunga í valdamúrinn. Valdakerfið í fyrsta sæti og velferð almennings má sitja á hakanum.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.2.2009 kl. 21:54

13 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Gleymum heldur ekki svörtu bókinni hans Davíðs!

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 6.2.2009 kl. 21:54

14 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Einmitt, það búa ekki bara 2 þjóðir í þessu landi heldur 3 þjóðir. Skríllinn, auðmenn og stjórnmálamenn og svo embættismenn.

Ég bíð spenntur eftir að DO opni sitt pandórubox!

Arinbjörn Kúld, 6.2.2009 kl. 22:04

15 identicon

Mig langar endilega ad svara einu kommenti herna...

`Það má ekki reka menn nema þeir hafi gerst brotlegir í starfi.`

hahahaha.... Efnahagslifid er i þroti, og allir bankar ordnir gjaldþrota... Þad er ekki brot i starfi, er tad nokkud???

Eftirfarandi sagði Davíð rátt áður en bankarnir hrundu

Íslenskt bankakerfi og íslensk efnahagsmál standa traustum fótum þótt á móti blási um þessar mundir. Kerfisbundið afnám ýmiss konar hafta í efnahagsstarfseminni á síðustu fimmtán árum eða svo, einkavæðing, markvissar skattalækkanir og alþjóðavæðing íslensks atvinnulífs hafa þegar skilað stórfelldum ávinningi og lagt grunninn að nýju framfaraskeiði á komandi árum. Við munum hiklaust halda áfram á þeirri braut þegar við höfum unnið okkur út úr þeim tímabundnu erfiðleikum sem nú steðja að.”

Reka manninn strax, takk fyrir.

Kjartan Olason (IP-tala skráð) 6.2.2009 kl. 22:50

16 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Uss, nú er Davíð ánægður! Allra augu á honum og stolltur hann sperrir sitt stél... En ég kvíði engu. Jóhanna á eftir að vinna þennan slag. Ekki vanmeta úthald hennar sem er byggt upp af seiglu og festu!

Nú ef þetta klikkar þá legg ég til að það verði kallaður út geðlæknir og prestur...

Rakel Sigurgeirsdóttir, 7.2.2009 kl. 01:01

17 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ætli það þurfi ekki pípulagningamann líka...og lásasmið..

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 7.2.2009 kl. 01:24

18 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Rakel Sigurgeirsdóttir, 7.2.2009 kl. 01:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband