Löggjafarvaldið komið til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Jóhanna getur ekki sett ný lög um seðlabanka í sinni upprunalegu mynd vegna þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn vill það ekki.

Það er augljóst að löggjafarvaldið hefur verið fært út höndum þjóðarinnar í boði landráðaflokkanna og föðurlandssvikaranna sjálfsstæðisflokks, framsóknar og samfylkingar.

Það er augljóst að samningur við Alþjóðagjaldeyrissjóðsinn eru bæði föðurlandssvik, landráð og brot á stjórnarskrá landsins.

Gerður hefur verið leynisamningur við erlenda stofnun um að fara með völd í landinu gegn því að þessi stofnun borgi skuldir nokkura einstaklinga og óráðssíu sjálfstæðisflokks.


mbl.is Ábendingar IMF styrkja frumvarpið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Þegar bankarnir hrundu og ljóst varð að við yrðum að leita á náðir AGS þá varð ljóst að efnahagslegt sjálfstæði okkar var horfið. Svo virðist vera einnig að sjálfstæði okkar á öðrum sviðum sé horfið og ríksstjórn ekkert annað en framkvæmdaaðili fyrir sjóðinn. Við getum því gleymt kosningum í vor því eru eru tilgangslausar og gagnslausar.

Arinbjörn Kúld, 13.2.2009 kl. 16:34

2 Smámynd: Georg Birgisson

Það koma fram strax í upphafi að IMF vill ráða buddunni ef hann kemur inn. Það eru gömul sannindi að sá sem ræður buddunni ræður hvað gert er.

Við áttum einfaldlega ekki annan kost úr því sem komið var. Áherslan þarf að vera að losa okkur sem fyrst aftur undan IMF.

Georg Birgisson, 13.2.2009 kl. 17:16

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Flott, þá skulum við líka bara rétta yfir þeim sem "sömdu" við IMF um IceSave og dæma þá fyrir landráð. Það sem gerist þá, samkvæmt alþjóðalögum, er að mikið af þeim skuldum sem þeir hafa lagt á þjóðina falla niður! (Á sama hátt og samningur sem er gerður undir þvingunum er ekki lagalega bindandi.) Auk þess er búið að úrskurða að neyðarlögin sem heimiluðu yfirtökuna á bönkunum brjóta stjórnarskránna. Þar með eru skuldir sem af því hljótast ekki þjóðarinnar heldur á persónulega ábyrgð þeirra sem tóku þessar ólöglegu ákvarðanir og framkvæmdu þær. Þannig eru alþjóðalög, svo er bara spurning hvort íslenska þjóðin vill fara eftir þeim...

Guðmundur Ásgeirsson, 13.2.2009 kl. 17:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband