Hvernig væri að fara að fylla tugthúsin...

...og byggja við þau og fylla viðbyggingarnar líka.

Stolið úr peningamarkaðssjóðum

Lánuðu hvor öðrum

Loftbólutekjur...breyttu lánsfé í eigið fé....milljarðaþjófnaður

...og ræningjarnir sem stálu fisknum í sjónum

....og FL group greiddu milljarða í arð, mútuðu stjórnmálaflokkum og hirtu jarðvarmaauðlindirnar

...stálu sparsjóðunum....Imon....Saxhóll...Nóatún....600 millj...480 millj...Fons...hundrað og eitthvað milljarða....

Það hefur verið erfitt að koma böndum yfir glæpamennina vegna þess að þeir eiga sér skjól í ríkisstjórnum.

Bullandi refsivert segir Atli Gíslason

Ef sjálfstæðisflokkur og framsókn komast til valda fer allt til fjandans

Mafían spriklar núna

Hvers vegna vill framsókn ekki opna bókhaldið?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Það væri við hæfi að breyta tónlistarhúsinu í hvítflibbatugthús.

Björgvin R. Leifsson, 10.4.2009 kl. 22:45

2 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

En auðvitað á að hirða vegabréfin af þessum landráðamönnum og gera þá svo landræka.

Björgvin R. Leifsson, 10.4.2009 kl. 22:46

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Besta hugmynd sem ég hef heyrt lengi

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 10.4.2009 kl. 22:46

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

já eða það. Það er sjónmengun af þessu liði.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 10.4.2009 kl. 22:46

5 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ég sé að þú ert reið. Skiljanlegt. Hver er það ekki. Skv. tilkynningu Framsóknarflokksins, var enginn styrkur yfir 5 milljónum, og upphæðir virðast fremur sambærilegar við þ.s. Samfylking fékk: http://www.amx.is/stjornmal/6183 Hvað um það, Framsóknarflokkurinn, hefur samt sem áður, gengið lengra en aðrir flokkar, við að skipta út fólki, í ráðandi stöðum innan eigin flokks. Það sem hefur gerst, hérlendis, er ábending til okkar, að lítil samfélög eins og okkar, eru sennilega enn meira hætt við því sem erlendis kallast óeðlileg samskipti milli viðskiptalífs og stjórnvalda. Það má vera, að við þurfum að gerast Kaþólskari en páfinn, hvað varðar regluverk, til varnar.

Samt sem áður, er ekkert sem kemur í stað, að menn séu vakandi. Stjórnmál eru, og verða alltaf, aðlaðandi fyrir einstaklinga, sem sækjast eftir völdum og eru ef til vill einnig veikir á svellinu, hvað siðferðið varðar. Ég tel þetta vera óbreytanlegt vandamál. 

Eina lausnin, er stöðugt eftirlit með pólitíkinni, þ.s. hennar afskipti eru óhjákvæmileg, en síðan hitt að hafa þau afskipti í eins miklu lágmarki, og hægt er. Með öðrum orðum, að hafa eins fátt í höndum pólitíkusa, og praktískt mögulegt er.

Fyrirtækjum, er sannarlega, eins hætt og öðrum mannlegum skipulagseiningum, við spillingardraugnum. Það sem heldur eftir henni, er samkeppni. 

Það er því, eitt að forgangsmálum, að efla samkeppnisstofnun, og gera hana grimmari, og einnig, að efla rétt hennar til aðgerða.

Almennt séð, tel ég okkar þjóðfélag gott.

Einar Björn Bjarnason, 11.4.2009 kl. 00:03

6 Smámynd: Helga Þórðardóttir

Eftir að hafa séð Draumalandið í kvöld Þá grunar mig að Framsókn hafi fengið einhverja bitlinga frá Alcoa. Mæli með því að allir Íslendingar sjái myndina.

Helga Þórðardóttir, 11.4.2009 kl. 00:23

7 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Einar Björn almennt séð hefur þessu landi verið stjórnað af spilltum einstaklingum sem ryksugað hafa öll verðmæti og stungið af með þau til aflandseyja. Þeir sem stolið hafi ríkiseignum og fiskinn í sjónum hafa komið mörgum fjölskyldum á vonarvöl.

Talandi um framsóknarflokk þá eru þar inni einstaklingar sem hafa tekið þátt í dansinum og þykjast vera endurfæddir.

Því miður þeir eru í kafi upp á axlir.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.4.2009 kl. 00:51

8 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Það held ég vera of neikvæða afstöðu. Það sem gerðist, síðustu árin, er ekki endilega spegilmynd þess sem áður átti sér stað.

Það verður sennilega, ætíð einhver spilling til staðar. Það sama, mun sennilega eiga við, og að aldrei er hægt að útríma glæpum, einungis að halda þeim innan einhverra marka sem samfélagið getur búið við.

Það er allt og sumt, sem við getum náð fram, þolanlegu ástandi. Breiskleiki manneskjunnar, einfaldlega er of mikill, til að annað komi til greina.

Síðan, má ekki gleima, varðandi fiskimiðin, að það þarf einhverja takmörkun á aðgangi að fiskveiðum. Kvóta af einhverju tagi. Ef til vill ekki akkúrat á núverandi formi. En, stór fyrirtæki, eru ekki slæm að öllu leiti. Þau hafa sitt hlutverk, svo lengi sem eftirlit er nógu gott, og samkeppni viðhaldið.

Kveðja.

Einar Björn Bjarnason, 11.4.2009 kl. 02:04

9 identicon

Þú ert ekki alveg í jafnvægi. Viltu ekki hvíla þig áður en þú eitrar meira opinberlega sora á borð við þessi skrif þín? Viltu ekki bara slaka aðeins á?

G. 

Gunnar (IP-tala skráð) 11.4.2009 kl. 02:35

10 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

Framsókn hyggst opna bókhaldið en leitar eftir samþykki eða amk upplýsir styrkveitendur um það. Það kom fram í fréttum þannig að dylgjur um Framsókn og styrki eru bara dylgjur. Við sem reynum að koma upp heiðarlegum vinnubrögðum í Framsókn frábiðjum okkur svona dylgjur.

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 11.4.2009 kl. 22:00

11 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Salvör það þýðir ekkert að vera að frábiðja sér dylgjur í garð flokks sem hefur gefið sjálfum sér ríkiseignir og hefur menn á borð við Finn og Halldór í baksætinu. Það þýðir heldur ekkert að vera að tala um dylgjur meðan að menn leyna bókhaldinu. Þú getur kannski útskýrt fyrir mér leynimakk vegan orkusamninga við iðjuver.

Ég er hrædd um að framsókn verði að gera betur en að reyna að þagga niður í þeim sem spyrja eðlilegra spurninga

Einar Björn Það verður nú varla sagt að það sem gengið hefur á síðasta áratuginn eigi nokkuð skylt við þolanlegt ástand. Spillingin í stjórnmálum og græðgi manna hefur rústað framtíð unga fólksins á Íslandi.

Framsókn ber höfuðábyrgð á skuldastöðu heimilanna í dag. Það er alveg sama hvernig rassinn á þeim er púðraður þetta skýn alltaf í gegn.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.4.2009 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband