Lítill skilningur á eðli peninga

Samfylkingin skilur ekki að krónan rétt eins og aðrir gjaldmiðlar er í órofa samspili við verðmætasköpun og efnahagsstjórn í samfélaginu. Getuleysi ríkisstjórnar samfylkingar og sjálfstæðisflokks  við efnahagsstjórn landsins endurspeglast í rússibanareyð krónunnar.

Samfylkingin býður upp á lausn sem er í raun engin lausn. Afsal valds til ESB þýðir að þjóðin þarf að beigja sig undir að þjóna hagsmunum ESB fremur en almennings á Íslandi.

Slæmt ástand á Íslandi þýðir að samningsforsendur eru afleitar og alls ekki tímabært að ganga í ESB.

ESB innganga núna þjónar því helst að fela klúður samfylkingar og sjálfstæðisflokks við efnahagsstjórn landsins en mun skaða þjóðina þegar til lengri tíma er litið.


mbl.is Jóhanna í Zetunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marteinn Unnar Heiðarsson

ESB

Manni er farið að gruna að sambó hafi lofað ESB ráðherrunum eitthvað og þegið mútur styrki frá ESB í staðin og sama má sega um formenn ASÍ og marga aðra sem lofa ESB í hástert allavega er þetta fólk ekki að hugsa um hag þjóðarinnar það er einhverjar skrýtnar kendir þar að baki!!!!Afhverju vill þetta fólk ekki ræða um Dollar sem gengi fljótar fyrir sig og ekki þarf að láta fullveldi landsins á móti einsog sambó og ASÍ vilja gera.Það þarf ekki að fara í aðildarviðræður við vitum um 98% reglunum og hvað við fáum en það eru þessi 2% sem eru aðalmálið og allt snýst um .Það er nóg að senda 2 fúlltrúa þarna út til Brussel með eitt bréf sem í stendur þetta er það sem við viljum halda að fullu hér semsagt fiskimiðin-landbúnaðurinn-og okkar dýrmæta orka og náttúra og hvað viljið þið gera?ekki einfaldara.Og svarið verður stutt og laggott frá ESB farið bara heim aftur við höfum ekkert við ykkur að tala.Muna bara að kjósa ekki þennan spyllinga flokk sem vil afsala okkar sjálfstæði.

Marteinn Unnar Heiðarsson, 20.4.2009 kl. 14:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband