Já mjög óvenjulegt

Ég hef verið að hnýta út í misnotkun á hugtakinu femínismi. Femínisminn er tæki til varnar hinum undirokuðu í samfélaginu og með femínismann að vopni má ráðast gegn ríkjandi orðræðu og því sem telst ranglega réttmætt í samtímanum.

Skuldarar eru hinir undirokuðu í samfélaginu í dag hvort sem þeir eru karlar eða konur. 

Ég birti þessa grein í smugunni í dag:

Icesave er valdníðsla og valdníðsla er andstæðingur feminismans

Icesave samningurinn er birtingarmynd valdníðslu. Margir hafa tekið að sér að bera þennan kyndil valdníðslunnar. Sjálfstæðismenn og Framsókn tendruðu þennan kyndil þegar þeir komu bönkunum í eigu glæpaklíku. Samfylkingin slóst í hópinn þegar hún tók þátt í gróðahyggjunni og blekkingarleiknum sem hannaður var til þess að hafa fé af almenningi.

Gordon Brown og  Hollendingurinn Bos slógust einnig í hópinn með kröftugum hætti eftir bankahrunið. Kyndillinn var síðan afhentur núverandi fjármálaráðherra og vini hans sendiherranum. Í þeirra höndum átti að lögleiða valdníðsluna með ríkisábyrgð sem endanlega hnýtir undirokun við hinn íslenska skattgreiðenda.

Það þykir ekki fínt að gagnrýna Steingrím J fyrir framgöngu hans í Icesave málinu. Fólk sér Steingrím fyrir sér í óhroðanum upp að öxlum sem Sjálfstæðismenn skildu eftir sig og ekki ætla ég að andmæla því að verkefnið væri nokkuð vandasamt ef Steingrímur hefði tekið afstöðu með þjóðinni og gegn valdníðslunni. Hann valdi þó að gera það ekki. Hann tók stöðu með Icesave og því stöðu með valdníðslunni.

Valdhafinn hefur nýtt sér alla þræði valdsins og byggt upp hugmyndakerfi sem ætlað er að sannfæra almenning um að réttmætt sé að gera skuldir glæpaklíkunnar að skuldum skattgreiðenda. Aðgangur valdhafa að fjölmiðlum og fjármagni er ótvíræður og það nýta þeir sér. Til allrar hamingju búa nægilega margir Íslendingar yfir þekkingu til þess að rífa niður þessi hugmyndakerfi jafnóðum og illa gekk því að afvegaleiða þjóðina. Rökþrota vísaði ráðherrann síðan í leyndarmál máli sínu til stuðnings.

Nú á að setjast að samningaborðinu aftur en leyndarmál Steingríms virðist hafa gufað upp. Ýmsir Vinstri grænir tóku stöðu með Steingrími en það jafngildir að taka stöðu með valdníðslunni. Femínisminn er hugmyndafræði sem talar máli hinna undirokuðu hvort sem um er að ræða konur, börn, fatlaða eða samkynhneigða. Femínisminn er gagnrýnin á ríkjandi viðhorf og hvetur til frjálsrar hugsunar. Femínisminn er andstæðingur mismununar og hvers konar misbeitingar valds.

Ég hef kynnt mér nokkuð vel femínisma og það sem kallað er critical theory. Það kom mér því á óvart að horfa upp á vinnubrögð kvenna sem kalla sig femínista í aðdraganda forvals Vinstri grænna um síðustu helgi. Ég ákvað að gefa kost á mér í forvalinu. Hélt satt að segja að menn og konur myndi gleðjast yfir að fá sterka konu í framboðið, þ.e. valkost fyrir þá sem vilja sjá ferska vinda í stjórnmálum auk þess að aðhyllast félagshyggjusjónarmið og jöfnuð.

Það kom mér sérlega á óvart þegar ég frétti af því að yfirlýstir feministar Vinstri grænna gerðu að mér aðför í aðdraganda forvalsins. Létu þau boð út ganga að konan væri klikkuð og annað álíka. Það að vera klikkaður er auðvitað mjög huglægt og hver og einn er getur sennilega talist nokkuð klikkaður út frá einhverjum forsendum. Mér finnst t.d.  að sá sem telur sig meðreiðasvein valdníðslunnar og tekur afstöðu með Icesave ekki sérlega klikkaður og tiltölulega sjálfum sér samkvæmur. Ég tel hinsvegar að sá sem kallar sig feminista og tekur afstöðu með Icesave hljóti að vera klikkaður. Nú ekki er laust við að sá sem kallar sig feminista og er með fordóma gagnvart klikkuðum konum sé bara nokkuð klikkaður sjálfur.

Það barst af því frétt í VB að Sóley Tómasdóttir hefði krafist þess að forsetinn segði af sér þegar hann vísaði Icesave til þjóðarinnar. Ekki virðist feministinn hafa verið því hliðhollur að forsetinn skildi hafa tekið stöðu gegn valdníðslunni og hyllt lýðræðið. Eins og komið hefur fram er skilningur minn á feminisma sá að hann taki stöðu með þeim sem eru áhrifaminni í orðræðunni og sé tæki til þess að beita gegn misnotkun valds.

Það er því nokkuð í andstöðu við minn skilning á því hvað feministar Vinstri grænna ættu að vera að gera þegar fréttir berast af því að Silja Bára Ómarsdóttir sem er lektor við Háskóla Íslands hafi staðið í smölun fyrir einn frambjóðandann og sett sig í samband við nemendur sína. Hegðun af þessu tagi er birtingarmynd valdníðslu og ætti ekki að líðast innan Háskóla Íslands. Það er ekki hægt að taka það af lektorum að þeir hafi stjórnmálaskoðanir og að sýn þeirra speglist á einhvern hátt inn í kennslustofur. Við erum hins vegar komin inn á allt annað svið þegar viðkomandi er farinn að beita sér fyrir persónu í forvali fyrir tiltekinn flokk.

Fleiri sögur hafa borist af fólki sem ekki hafa skynjað stöðu sína í aðdraganda forvalsins og misnotað vald sitt á ýmsan hátt.

Stjórnsýslan í Reykjavík ber á ýmsan hátt menjar úrelts fyrirkomulags. Það er veruleg þörf á einstaklingum í stjórnsýsluna sem skilja hvað siðferði í stjórnsýslu þýðir. Sem skilja hvað nútímalegt fyrirkomulag í stjórnsýslu felur í sér. Það er því miður þannig að valdagræðgi virðist valda því að einstaklingar missi sjónar af góðu siðferði, hugsjónum og vönduðum vinnubrögðum. Ég velti því fyrir mér hvort að þetta myndi ef til vill lagast ef dregið verður úr bitlingum til stjórnmálamanna.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Stjórnsýslufræðingur 

 

 


mbl.is Trufluðu nauðungaruppboð
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Réttlát mismunun? Ég tel að við getum öll staðið saman ef við ákveðum að við séum öll jöfn og við erum öll samferða.

Sumarliði Einar Daðason, 10.2.2010 kl. 14:22

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mér finnst framboðið hafa sett niður í þessu prófkjöri.

Ásdís Sigurðardóttir, 10.2.2010 kl. 14:28

3 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Þú átt inni hjá mér faðmlag næst þegar ég hitti þig.

Axel Þór Kolbeinsson, 10.2.2010 kl. 14:53

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Alltaf gott að fá knús Axel

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 10.2.2010 kl. 14:56

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Stend með ykkur

Sigurður Haraldsson, 10.2.2010 kl. 15:15

6 identicon

sandkassi (IP-tala skráð) 10.2.2010 kl. 16:47

7 Smámynd: Andrés.si

Þetta var mjög gott hjá þér Jakobina. 

Má einnig bæta hér vídeó frá uppboði. 

 http://www.youtube.com/watch?v=2f7doUGfDX4

Andrés.si, 11.2.2010 kl. 12:31

8 Smámynd: Gunnar Skúli Ármannsson

Sæl Jakobína,

góð færsla. Ef feministar berjast gegn þeim sem minna má sín og verður fyrir valdníðslu, þá eru þeir á rangri hillu í dag. Er hugsanlegt að það sem einkennir málflutning feminista í dag í Reykjavík sé spurningin um frama fína fólksins?

Gunnar Skúli Ármannsson, 13.2.2010 kl. 02:03

9 Smámynd: Andrés.si

Ef rang væri hjá Jakobínu hefðu feministar verið á Austurvelli dag hvert en ekki bara í november í fyrra.

Annars er  að ræða um karl rembur í kvenkyns líkama.

Andrés.si, 13.2.2010 kl. 02:11

10 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Takk strákar

Gott að fá viðbrögð hjá feministum

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 14.2.2010 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband