Mogginn leiðinlegasti fréttamiðillinn

Mogginn virðist einbeita sér að því að skrifa einungis fréttir af veðurfari og smákrimmum. Útrásarvíkingurinn Ingibjörg Pálmadóttir hefur eignast fréttablaðið. Fjölmiðlar virðast almennt ekki hafa áhuga á því hverjir eiga bankanna og hvort þeir séu á mála hjá glæpalýðnum.

Er bönkunum er stjórnað af málaliðum útrásarvíkinga?

Þau Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra telja að skattsvik í gömlu bönkunum þremur, Kaupþingi, Landsbanka og Glitni hafi numið hundruðum milljarða.

Indriði J Þorláksson var ríkisskattstjóri á tíma útrásarinnar og virðist hafa haft minni áhuga á að innheimta skatt af útrásarvíkingum en hann hefur á því að skattpína þjóðina til þess að greiða Icesave nú um stundir. Davíð Oddson var Seðlabankastjóri og forsætisráðherra á sama tíma. 


mbl.is Óveður á gossvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Einhver hagfræðingur og álitsgjafi, held það hafi verið Guðmundur Ólafsson, kom með  þá eitursnjöllu hugmynd að flytja starfsemi Kaupþings og Glitnis til einhvers ESB lands, helst Þýzkalands. En ég er ekki viss um að hugmyndin njóti stuðnings hjá kommisserunum í Brussel miðað við fyrri reynslu   Til hvers erum við að starfrækja 4 banka?  Þetta er bara bilun

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 5.4.2010 kl. 16:51

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Það er fínt að séu einhvers staðar fréttir af veðurfari!

Sigurður Þór Guðjónsson, 5.4.2010 kl. 17:07

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Eitt alvarlegasta vandamál þjóðarinnar í dag er bilunin í viðskiptasiðferði. Það líður varla sá dagur að fjölmiðlar upplýsi ekki fjármálamisferli af einhverjum toga og afar oft er um að ræða upphæðir sem jafna veigamiklar greiðslur fjárlaga.

Meðvitund þjóðarinnar er tekin að sljóvgast því þetta er orðið eins og fréttir af veðri eða þróun eldstöðvar á Fimmvörðuhálsi.

Er ekki ljótt að spyrja hvort öll stjórnsýsluhirðin sé svo tengd þeim einstaklingum sem nafngreindir eru að af henni sé einskis að vænta í viðbrögðum og innheimtu á þessum umtalsverðu fjármunum þjóðarinnar?

Ég geng svo langt að krefjast þess að fengnar verði erlendar lögmannaskrifstofur til að rannsaka stjórnsýslu ríkisstjórnar Geirs Haarde og ekki síður ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur.

Íslensk stjórnsýsla er komin niður fyrir öll lágmörk siðaðra ríkja.

Það er barnaskapur að trúa því að skýrsla rannsóknarnefndarinnar muni upplýsa nema brot af þeim refsiverðu efnahagsbrotum sem skýrt hefur verið frá í aðeins einu íslensku blaði DV.

Árni Gunnarsson, 5.4.2010 kl. 17:11

4 identicon

Fréttablaðið er leiðilegasty fréttamyðilin, moggin er bestur.

Meðvitund þjóðarinnar er tekin að sljóvgast því þetta er orðið eins og fréttir af veðri eða þróun eldstöðvar á Fimmvörðuhálsi.

Mér finnst þetta vera frábær fréttaflutningur hjá mogganum en ekki hjá fréttablaðinu.

Jón (IP-tala skráð) 5.4.2010 kl. 20:18

5 identicon

Sammála þér Jakobína eins og oft.

Jón, ertu einn af þeim sem fórst á námskeiðið hjá Sjálfstæðisflokknum til að geta bloggað í vörn fyrir FLokkinn?

Rósa (IP-tala skráð) 5.4.2010 kl. 21:25

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Árni minn! Ég tek undir hvert orð hjá þér. M.b.kv. Anna

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.4.2010 kl. 22:29

7 Smámynd: Hörður B Hjartarson

    Rósa !

    Þú skrifar orðið "flokkinn" ekki rétt - það á að vera  " FL okkinn " , en ætli sjálfgræðgis FL okkurinn fari ekki að halda námskeið í réttritun fyrir sína menn - ei mun af veita .

Hörður B Hjartarson, 5.4.2010 kl. 23:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband