Dularfyllsta mál aldarinnar

Það er mér sífelld ráðgáta hversu Steingrímur virðist áfjáður í að gera Íslendinga að skattgreiðendum í Hollandi.

Ég hef aldrei dregið dul á þetta vandamál mitt jafnvel ekki eftir að Steingrímur lét henda mér út af framboðslista VG fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar að því er sögur herma vegna þess að ég fór í taugarnar á honum. 

Steingrímur fer ekkert í taugarnar á mér. Vandinn er fremur að málflutningur hans kemur mér sífellt á óvart og ég á erfitt með að stilla mig um að hafa skoðun á honum.

Ofuráhersla Steingríms á það að tala við Hollendinga eins og hann bíði þess eins að geta hrakið sjúka og fátæka út úr velferðakerfinu rek ég helst til þess að Steingrímur sé að uppfylla leynisamning við Samfylkingun.

Samning sem felur í sér að Steingrímur fái að vera fjármálaráðherra meðan hann er málpípa Samfylkingarinnar í þessu vandræðamáli sem ógnar ESB draumsýninni.  

Það er svo margt í sambandi við Icesave sem má alls ekki segja.

 


mbl.is Óvarlegt að tala svona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Ekki gleyma Bretlandi -

Steingrímur er brotinn og bugaður maður sem verður að draga sig í hlé áður en heilsufar han versna enn frekar.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 18.9.2010 kl. 16:56

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já það er djöfullegt fyrir Steingrím að Sjálfstæðisflokkurinn skyldi henda þessu máli í fangið á honum

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.9.2010 kl. 17:00

3 identicon

Það virðist sem Steingrímur ráðherra (fjármála) ætli bara að borga úr sínum vinstri vasa.  Hann hlýtur að vera sæmilega vel fjáður ráðherrann.  'Eg held að þetta fj....  ráðherralið ætti að halda sér heima á Skerinu og láta aðra um viðræður erlendis, hvort það er um Icsave eða aðra hluti.  Það er margsannað að ráðamanneskjur þjóðarinnar hafa "lága greindarvísitölu,ef maður tekur mið af því sem þetta fólk hefur framkvæmt síðustu 20 ár. Heppni fyrir þig Jakobína að þú ert ekki nálægt þessum vitleysingum.  Steingrímur hefur þá reddað mannorði þínu, það er kannske það eina góða sem eftir hann liggur.

J.þ.A. (IP-tala skráð) 18.9.2010 kl. 17:05

4 identicon

Kannski hjálpar þér, til að skilja betur þá sem telja að best fyrir okkur að ná samkomulagi um málið, að lesa meðfylgjandi álit EFTA?  

http://www.eftasurv.int/media/internal-market/LFN-Icesave.pdf

ASE (IP-tala skráð) 18.9.2010 kl. 17:46

5 identicon

Ertu til í að útskýra nánar hvernig Steingrímur gat hennt þér út af framboðslísta VG. Er þetta ekki lýðræðislegur flokkur eða er þetta NatZional demókratískurflokkur.

Guðmundur Ingi Kristinsson (IP-tala skráð) 18.9.2010 kl. 17:58

6 identicon

Var vandamálið ekki fyrst og fremst að næstum enginn í VG vildi fá þig á lista? Allavega hló ég mikið að því þegar ég skoðaði stuðningsmannalistann þinn og sá aðallega fólk úr öðrum flokkum þar.

Óli Gneisti (IP-tala skráð) 18.9.2010 kl. 18:30

7 identicon

Heyrirðu það Jakobína. Klíkan vildi þig ekki. Skítt með kjósendur. Klíkan vildi þig ekki.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 18.9.2010 kl. 19:56

8 identicon

Gaman að sjá commentin, hefur enginn ennþá velt fyrir sér raunverulegu ástæðunni fyrir að bretar notuð hryðjuverkalögin og skutu bankana í kaf. Eða halda allir virkilega að bretar hafi verið svo heimskir að kveikja í húsinu sem þeir ætluðu sér að fá ?

Sorrý krakkar, bretar eru ekki heimskir, né eru þjóðverjar það, en við íslendingar erum greinilega nautheimskir.

Reynið nú einhverntímann að skríða undan steinunum og kíkja á skóginn í stað trésins fyrir ykkur.

Samkvæmt fréttum er einn stærsti kröfuhafi Glitnirs Burlington Loan Management Limited. Við skulum vona að svo sé ekki því það fyrirbæri var stofnað 27 maí 2009 á Írlandi og fellur undir skilgreininguna skúffufyrirtæki. Merkilegt en satt.

Og ef þið létuð minna af árásum hvert á annað og meira af því að ganga úr skugga um að yfirlýsingar og fréttir séu réttar og nákvæmar þá hefði landið smugu að komast út úr spillingarmálum en við uppskerum víst það sem við sáum og ef við gróðursetjum trúgirni og heimsku uppskerum við það að vera tekin upp á eyrunum.

hlynur (IP-tala skráð) 18.9.2010 kl. 20:35

9 identicon

Hlynur, heyr, heyr, heyr!  Fljótandi sofandi að feigðarósi..... sennilega aldrei átt betur við!  Mikið rosalega óttast ég að við séum endanlega að spila rassinn úr buksunum.  En reyndar var kannski ekki mikið orðið eftir :-o

ASE (IP-tala skráð) 18.9.2010 kl. 21:41

10 Smámynd: Elle_

ESA átlitið, komandi fyrst núna 2010, heldur ekki vatni og óþarfi að ljúga að okkur, ASE, um nauðsyn þess að semja um Icesave.  ESA fór með eftirlit Icesave bankanna í bæði Bretlandi og Hollandi og það gerðu líka bresk og hollensk stjórnvöld. 

Nú gætir þú spurt þig hvers vegna ESA og Evrópusambandið koma fyrst núna og halda fram að íslensk stjórnvöld hafi innleitt TIF vitlaust, etc., etc.  Hvar var ESA þá??? 

Og bresk og hollensk stjórnvöld sem bæði veittu bankanum starfsleyfið og fóru með eftirlit bankanna í sínum löndum eins og hvern banka með fasta starfstöð (physical presence) þar SAMKVÆMT EVRÓPULÖGUNUM, brugðust heiftarlega og ætla núna að koma öllu yfir á okkur.  Og hver ert þú endalaust talandi fyrir Icesave-fjárkúguninni??

Elle_, 18.9.2010 kl. 23:08

11 Smámynd: Elle_

Þ. e. ESA fór með eftirlit Icesave bankanna hvað varðar starfsemina á Íslandi og TIF.  Íslenska ríkið gat ekkert stoppað Icesave í Bretlandi og Hollandi VEGNA EES SKAÐRÆÐISSAMNINGSINS.  Íslenska ríkið hafði ekki lögsögu í Bretlandi og Hollandi.

Elle_, 18.9.2010 kl. 23:19

12 identicon

Hér er hressilega barið í brestina...."directivinu" nær umturnað ! 

http://ec.europa.eu/internal_market/bank/docs/guarantee/20100712_proposal_en.pdf 

 Sérfræðingar seðlabanka Hollands eru líka sammála að engin sé ríkisábyrgðin...sjá bls 23 -25 !!

http://www.dnb.nl/binaries/OSVolNr2_tcm46-146642.pdf

http://www.dnb.nl/nieuws-en-publicaties/publicaties-dnb/dnb-occasional-studies/auto48167.jsp...

Já og ástæan fyrir hryðjuverkalögunum var að fá forræði yfir þrotabúinu sem þeir geta líka hirt ;)

The fact that Icesave was a branch meant that two alternative courses of action

were not available to HM Government. Firstly, if it had been a subsidiary, it

would have been authorised by the FSA to carry out banking activities. This

would have allowed the FSA to remove its permission for Icesave to carry out

regulated activities. And secondly, if it had been a subsidiary, a winding up

order could have been obtained.

Bendi áhugasömum á frábæra samantekt á gjaldþrotameðferð cross-border banka (líkt og Landsbanka í uk) :

http://fmg.lse.ac.uk/upload_file/1161_Nieto.pdf

http://www.fmlc.org/papers/Issue141Report.pdf

Hólmsteinn Jónasson (IP-tala skráð) 19.9.2010 kl. 10:05

13 identicon

Bendi áhugasömum á frábæra samantekt á gjaldþrotameðferð cross-border banka (líkt og Landsbanka í uk) :  

http://www2.lse.ac.uk/fmg/documents/events/conferences/2009/regulatoryResponse/1161_Nieto.pdf

Hólmsteinn Jónasson (IP-tala skráð) 19.9.2010 kl. 10:14

14 identicon

Sérfræðingar seðlabanka Hollands eru líka sammála að engin sé ríkisábyrgðin...sjá bls 23 -25 !!

http://www.dnb.nl/nieuws-en-publicaties/publicaties-dnb/dnb-occasional-studies/auto48167.jsp

Hólmsteinn Jónasson (IP-tala skráð) 19.9.2010 kl. 10:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband