Fitna á einokun og okurstarfsemi

Það verður ekki séð að viðskiptalífinu hafi farið fram frá hruni. Einokun og samráð er þjófnaður af viðskiptavinum. Þetta hafa olíufélögin og þetta hafa grænmetisframleiðendur stundað. Matvöruverslun á Íslandi er einnig langt yfir þeim mörkum hlutdeildar sem leifð eru erlendis.

Fréttir úr bönkunum herma að þeir fitni vel á lánakerfi sem hvergi þekkist nema á Íslandi. 

Margir bölva verðbótunum en það eru ekki verðbæturnar einar og sér sem valda gífurlegum kostnaði við húsnæðislán. Eins og menn þekkja þá leggjast verðbæturnar við höfuðstól og veldur það margfeldi í vaxtaráhrifum. 

Verðbæturnar fela líka í sér að öll áhættan leggst á lántakandann en lítil á bankann. Það hefur sýnt sig að bankarnir hafa ofmetnast og fyllst kæruleysi þegar þeir horfa á peningamaskínurna sem verðtryggingin er. Bankarnir virðast aftur vera að fitna og fyllast af græðgi.

Það má kannski minna á að einhverjir aðilar keyptu skuldabréf í bönkunum á uppboði fyrir u.þ.b. 2-4% af nafnvirði bréfanna eftir hrun. Engin veit hverjir þessir kaupendur eru sem urðu síðan kröfuhafar og fengu bankanna nánast gefins. 

Það er sjálfsögð krafa íslenskra skattgreiðenda og viðskiptavina að upplýst sé hverjir eigendurnir eru sem nú hagnast feitt á bönkunum. 


mbl.is 19 starfsmenn handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þessir kröfuhafar sem eiga bankana, eru ábyggilega sama fólkið og stuðlaði að hruninu... 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 9.3.2011 kl. 00:59

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Afar líklegt,auðrónagengið. 

Helga Kristjánsdóttir, 9.3.2011 kl. 03:07

3 Smámynd: corvus corax

Í siðuðum þjóðfélögum taka bankarnir ákveðna áhættu á móti viðskiptavinum sínum. Í siðuðum þjóðfélögum ...það er ekki Ísland.

corvus corax, 9.3.2011 kl. 07:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband