Þessi yndislegi drengur vill bjarga Íslandi

Sigurður Kári er farin að skipta sér af því sem fullorðið fólk gerir. Hann er staðalímynd útrásarinnar og tilheyrir kynslóð þingmanna sem heldur að það sé eðlilegt að þyggja mútur af viðskiptamönnum.

Hann sat við kné læriföðursins Hannesar Hólmsteins sem mjólkaði greiðslur úr ríkissjóði á meðan hann predikaði lækkun skatta.

Hann er einn af þeim sem hlúði að draumsýninni um Ísland sem alþjóðafjármálamiðstöð og skattaparadís fyrir auðmenn sem vilja komast hjá því að taka þátt í að byggja innviði samfélags þótt þeir séu tilbúnir að nýta þá.

Hann er eitt af undrabörnum þjóðarinnar sem vann að því að gera óskir viðskiptaráðs að landslögum.

Eftir tuttugu ára valdatíð SjálfstæðisFlokksins er dómskerfið spillt og ótrúverðugt.

...Landslög eru hriplek gagnvart fjárglæfrum

...Eftirlitsstofnanir ónýtar

...Fjölmiðlar líkjast meira áróðursgögnum en fréttamiðlum

...Sjávarútvegurinn stórskuldugur

...Bankarnir gjaldþrota

...Yfir tuttugu þúsund störf hafa glatast

...Einokun og verðsamráð gerir landið illbýlt fyrir launafólk

...Orkuveitna nánast gjaldþrota

....Ég veit ekki með ykkur en mér rennur kalt vatn á milli skinns og hörunds þegar ég hugsa um hugmyndir Sigurðs Kára um björgunaraðgerðir....


mbl.is Segir Jóhönnu ekki starfi sínu vaxna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Þessi yndislegi drengur fæddist inn í FLokkinn, sem þýðir að hann hefur aldrei þurft að dýfa höndinni í kalt vatn. Sem þýðir að hann telur sig geta rifið kjaft, á kostnað annarra. Sem aftur þýðir að siðblindan hjá krakkakvikindinu er svo algjör að þegar íhaldsflokkurinn klofnar þ. 9. næstkomandi, þá situr hann alveg búffs og skilur ekki neitt í neinu. Vegna þess að uppeldismaskína íhaldsins kennir ungunum að þau séu feilfrí. Manni verður flökurt.

Þráinn Jökull Elísson, 1.4.2011 kl. 23:18

2 Smámynd: Kristinn Daníelsson

Það er nú bara þannig að Sigurður Kári er í flokki sem yfir 40% þjóðarinnar styður um þessar mundir samkvæmt skoðanakönnunum. Þeim fer fækkandi sem hlusta á málpípur vinstri manna. Aðeins ríflega 17% þjóðarinnar treysta Jóhönnu Sigurðardóttir til verka.

Þú segir á síðunni þinni "Ég hef áhuga á aukinni þátttöku almennings í mótun samfélags og eflingu lýðræðis". Miðað við það sem ég hef séð af þínum málflutningi þá eru þetta öfugmæli því allur þinn málflutningur byggir á því að níða niður skoðanir annara og gera lítið úr persónum þeirra sem eru ekki sammála þér í skoðunum.

Guð forði okkur frá svona umræðum en svona vilt þú hafa Nýtt Ísland

Kristinn Daníelsson, 2.4.2011 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband