Við þurfum að byggja landið upp úr rústum valdaflokkanna

Samfylking, sjálfstæðirflokkur og framsókn hafa rústað þjóðarbúinu.

Unga fólkið í landinu er reitt.

Það var framtíð unga fólksins sem flokkarnir rústuðu.

Þeir þora ekki að segja NEI. Þeir ætla að láta unga fólkið blæða fyrir misgjörðir stjórnmálamanna sem þegið hafa mútur með því að skuldbinda skattgreiðendur til þess að borga skuldir sem ríkið hefur ekki stofnað til.

Unga fólkið er reitt með réttu.

Það verður að huga að því að byggja upp framtíð fyrir komandi kynslóðir á Íslandi.

Það verður ekki gert nema að leita til frumatvinnuveganna, efla framleiðslu og útríma einokun, höftum, samþjöppun, kvótaframsali og ofríki valdakerfisins.

Það þarf að bjarga fólkinu en ekki fjármálakerfinu.

Skattgreiðendur eiga ekki að greiða einkaskuldir.

Það þarf að tryggja auðlindirnar í þjóðareign.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ThoR-E

Hárrétt!

 Við þurfum að borga skuldir óreiðumanna. Óreiðumanna sem voru kallaðir útrásarvíkingar. Með mútum (eflaust) seldu þeir útvöldum flokksgæðingum (sem borga í flokkssjóðinn) bankana á Íslandi. Banka sem höfðu verið traustir.

Á fáeinum árum keyrðu þeir bankana í þrot, og efnahagskerfi þjóðarinnar hrundi með. Þessir óreiðumenn, með dyggri aðstoð spilltra stjórnmálamanna, hafa eyðilagt mannorð heillar þjóðar, vegna græðgi sinnar.

Sumir kalla þá glæpamenn.. aðrir landráðamenn. En siðlausir voru þeir og frömdu einnig glæpi.

Já.. unga fólkið er reitt. Það á við mig líka.

ThoR-E, 11.4.2009 kl. 22:05

2 Smámynd: ThoR-E

Smá lagfæring:

Með mútum (eflaust) seldu þeir (SjálfstæðisFLokkurinn) útvöldum flokksgæðingum (sem borga í flokkssjóðinn) bankana á Íslandi. Banka sem höfðu verið traustir.

ThoR-E, 11.4.2009 kl. 22:06

3 identicon

AceR, hvers vegna segirðu: "Við þurfum að borga skuldir óreiðumanna."

Þessi hugsunarháttur er hættulegur alþýðu manna.

Við, þ.e. íbúar þessa lands, erum ábyrg fyrir þeim skuldum sem ríkissjóður stofnar til. En við erum ekki ábyrg fyrir skuldum eigenda einkafyrirtækja.

Í öllum bænum, almenningur verður að vakna að skilja að þjóðin á að mótmæla því að vera látin borga skuldir eigenda einkafyrirtækja.

Stöndum við skuldbindingar okkar, en mótmælum kröftuglega að stjórnmálamenn ætla að hleypa erlendum lánardrottnum íslenska fjárglæframanna í veskin okkar.

Skuldir íslenskra fjárglæframanna eru ekki skuldir íslenskar alþýðu!

Helga (IP-tala skráð) 11.4.2009 kl. 22:19

4 Smámynd: ThoR-E

Ég er að segja það. Ég er algjörlega á móti því að Íslenskir skattborgarar þurfi að borga til dæmis Icesave ofl ofl.

En þannig lítur það út. Þáverandi ríkisstjórn samþykkti ýmislegt til að fá lánið frá AGS, eða IMF. Að borga hámarkið, á hvern innlánsreikning einkafyrirtækissins Landsbanki.

Ég neita því algjörlega að borga krónu af skuldum þessara óreiðumanna, sem skattborgari þessa lands!!

ThoR-E, 11.4.2009 kl. 22:44

5 Smámynd: ThoR-E

ESB og IMF kúguðu Íslensku ríkisstjórnina til að samþykkja greiðslu á innlánsreikningum þessa einkafyrirtækis sem var í eigu útrásarvíkinganna.

Þetta á að lenda á okkur .. og ófæddum löndum okkar.

Nei takk! þarna sýndi ESB sitt rétta andlit, og vona ég að Ísland gangi aldrei í ESB. Allavega ekki við þessar aðstæður.

ThoR-E, 11.4.2009 kl. 22:45

6 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Ætlum við að samþykkja þann gjörning að borga skuldir bankana erlendis? NEI og aftur NEI. Samþykki alþingi og ríkisstjórn það eru hvoru tveggja að fremja landráð og það munum við ekki samþykkja.

Arinbjörn Kúld, 12.4.2009 kl. 13:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband