Fnykurinn berst víða

Ímynd Íslands endanlega í skítnum þökk sé Sigurði Einarsyni. Framsókn takk fyrir þetta. Enginn Íslendingur getur opnað pulsusjoppu í Bretlandi næstu hundrað árin.

Andskotans kjölfestufjárfestar sjálfstæðisflokks og framsóknar búa nú í sínum lúxusvillum og menga pgi0221andrúmsloftið með andadrætti sínum á meðan rassin er púðraður á sjálfstæðismönnum og framsókn.

Sjálfstæðisflokkur og framsókn verja nú mútufé í áróður fyrir næstu alþingiskosningar. Ekki er hægt að opna vefsíðu eða dagblað án þess að glott formanna þeirra blasi við.

Fordæmalaust tillitleysi við ungafólkið sem þeir hafa rústað framtíðinni fyrir.

Stærsti glæpur mútuþeganna er að þeir hafa rústað trausti þjóðarinnar á réttarríkinu. Og þeir vilja endurvekja traust. Hvernig? Jú með því að láta smápeð taka á sig sökina og sópa skítnum undir teppið. Ég er hrædd um að fnykurinn berist eftir sem áður undan teppinu.

 


mbl.is Tapaði öllu á íslenskum bönkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Láttu ekki svona þó tvítug stelpa sem er hrifinn af 903 ára gömlum kalli segi eitthvað í þessa veru...listamenn geta og mega og gefa sér skáldaleyfi.....annars væri miðja heimsins ekki í Snæfellsjökli.

Gleðilega páska.

Gísli Guðmundsson (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 11:44

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Satt er það en þetta sýnir þó að Ísland er orðið ímynd hins illa þegar viðskipti eiga í hlut. Þetta hefur áhrif á hugarfar almennings sem glápir á sjónvarp.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 12.4.2009 kl. 11:51

3 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Ég var að ræða peningamál við hana Emblu dótturdóttur mín og var farin að segja henni að þegar hún fengi pening, þá væri gott að leggja helminginn til hliðar. Eins og ég kenndi krökkunum mínum. Þá áttaði ég mig á því að þetta á bara ekki við lengur. Hver kennir börnunum sínum að græddur sé geymdur eyrir? Það á bara ekki við lengur. Best að kaupa sér bara nammi fyrir allan peninginn og borða á staðnum. Áður en einhver seilist í aurinn. Að ég tali nú ekki um að opna fyrirtæki sem íslendur í útlöndum.

Rut Sumarliðadóttir, 12.4.2009 kl. 12:21

4 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Þú tekur ekki Samfylkinguna með, þótt hún hafi þegið mun meiri styrki en Framsókn. Hvernig útskýrirðu það?

Gestur Guðjónsson, 12.4.2009 kl. 13:28

5 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Samfylkingin er ekkert skárri Gestur minn. Það sýndi hún á áhrifamikin hátt í sinni stjórnartíð.

Arinbjörn Kúld, 12.4.2009 kl. 14:00

6 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Ódaunninn innanlands er illbærilegur þó slæmur sé víða.

Georg P Sveinbjörnsson, 12.4.2009 kl. 14:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband