Í eðli sínu rangur

...hafði Einar Már um Icesave samningin að segja og ég tek undir það.

Hvers vegna Steingrímur setur þú ekki ný lög?

Lög sem hljóða eitthvað í þessa veru:

Þegar einkafyrirtæki fara á hausinn þá er fyrst gengið að eignum ábyrgðarmanna. Eigur þeirra teknar upp í gjaldþrotið og síðan má skoða hvort Ríkið hlaupi undir bagga.

Einar Már sagði eitthvað í þessa veru en þetta er grundvallarspurning.

Ríkisvaldið gat sett neyðarlög til þess að bjarga stóreignafólki með þeim afleiðingum að ríkisstjórnin er komin í hatrammt stríð við alla Evrópu.

Hvers vegna er ekki hægt að setja önnum neyðarlög sem gera mönnum kleyft að takast á við glæpamennina sem léku sér með eignir landsmanna eins og þær væru þeirra eigin?


mbl.is Icesave-skuldbindingarnar ekki hættulegastar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég vil vita strax hvað þetta nærtæka hættulega sem getur knésett okkur er.  Ég verð ekki róleg fyrr en ég veit þetta. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 30.6.2009 kl. 01:40

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Það er orðið rosalega pirrandi hvernig þetta fólk talar í hálfkveðnum vísum.

Gefa hitt og þetta í skyn. Engan veginn boðlegt.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 30.6.2009 kl. 02:10

3 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Jamm, hvað er það nærtækasta?

Arinbjörn Kúld, 30.6.2009 kl. 02:29

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Þetta er í raun einfalt að skilja.

Þegar einkabanki hrynur bera stjórnendur [eigendur] fyrstu ábyrgð.[Samkvæmt alþjóðlegum almennum skilningi og tilskipun EU]

Hér hrundu allir bankarnir eða kerfið að banki tryggingarsjóðnum af sömu ástæðu. Sem flestir tekja glæpsamlega, fjármagnsflutningar, skattasvik, og féflettingar fjárfesta með óraunhæfum ávöxtunarkröfum og villandi upplýsingum um val verðbréfa. [Sviðsettar vinsældir og eftirspurn en þagað um hagnaðarferil úr daglegum rekstri].

Framferði sem hefur skaðað orðspor þjóðarinnar og efnahag að því marki sem flestir flokka undir landráð. 

Sólrún og Geir gátu strax í upphafi komið í veg fyrir þetta og gengið að þeim sem frömdu og málið var auðleysanlegt á EU mælikvarða.

Verðið sem Bretar láta okkur borga fyrir að hylma yfir alþjóðaglæpamönnum er í samræmi. Blackmail bak við tjöldin.

Það eru í raun þeir sem geta ekki handtekið þá sem féfléttu sem óttast dómstóla, Bretar eru refir frá fornu fari og samkvæmir sjálfum sér.

Stjórnmálamenn sem njóta velvildar Nefndarinnar í Brussel þurfa víst ekki að óttast um að eiga salt í grautinn og það er annað og flóknara mál.  

Það er aldrei of seint að breyta rétt. 

Júlíus Björnsson, 30.6.2009 kl. 03:06

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

Breska ævintýrið gekk út á að lofa hagsýnum sparifjáreigendum minnst 1% hærri innláns ávöxtun en giltu á markaði.

Breti með Milljón pund til fjárfestingar til 30 ára með 2% ávöxtun hefur í hendinni 1,8 milljón pund.

Hinsvegar ef ávöxtunin er 3% þá hefur hann 2,4 milljón pund í hendi eftir 30 ár. Sem er 30% hærri upphæð til útborgunnar.

Tilboð sem enginn gat hafnað eftir að Breskir stjórnmálamenn höfðu gefið grænt ljós.

Samkeppni Bankar á Bretlandi hljóta að hafa tjúllast.  

Þetta heitir að féflétta eða gera efnahagsárás að mínu mati. Spratt upp af þörf þegar lánalínur lokuðust og  búið var að þurrausa Ísland?

Júlíus Björnsson, 30.6.2009 kl. 03:31

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Hér hrundu allir bankarnir eða kerfið aðilar einkatryggingarsjóðsins af sömu ástæðu. Sem flestir telja glæpsamlega, fjármagnsflutningar, skattasvik, og féflettingar fjárfesta með óraunhæfum ávöxtunarkröfum og villandi upplýsingum um val verðbréfa. [Sviðsettar vinsældir og eftirspurn en þagað um hagnaðarferil úr daglegum rekstri].

Júlíus Björnsson, 30.6.2009 kl. 05:05

7 Smámynd: Haukur Nikulásson

Góðir punktar. Eftir allan þennan tíma gang menn alls staðar lausir... nema Lalli Johns.

Haukur Nikulásson, 30.6.2009 kl. 06:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband