Lýðheilsa og forréttindi

Samfélag getur verið vont og samfélag getur verið gott. Í góðu samfélagi er einstaklingum umbunað fyrir hæfni og dugnað. Í góðu samfélagi umgöngumst við þá sem ekki getað bjargað sér af virðingu.

Gott samfélag verður ekki til fyrir tilviljun heldur vegna kröfu þeirra sem byggja það upp. Kröfu um að byggðar séu upp græðgisvarnir sem miða að því að hindra einstaklinga sem hafa lítinn áhuga á velferð annarra og skemma samfélagið til þess að mata eigin krók.

Heilbrigðiskerfið er dýrasti hluti velferðarþjónustunnar. Undanfarna áratugi hefur átt sér stað þróun sem dregur úr jöfnu aðgengi að heilbrigðisþjónustu þrátt fyrir að það eigi að vera tryggt í lögum.

Sjúkratryggingar með beinum iðgjöldum voru lagðar niður fyrir um tuttugu árum og heilbrigðiskerfið þess í stað sett á fjárlög þar sem það keppir við önnur útgjöld hins opinbera. Æ stærri hluti þjónustunnar hefur verið færður úr samneyslunni yfir í einkaneysluna með innleiðingu og hækkun þjónustugjalda.

Á sama tíma hefur mismunun aukist gríðarlega í samfélaginu og það aðallega vegna þess að þeim sem hefur verið treyst hafa misnotað traustið þeim tilgangi að mata krók sinn fyrir sig og sín slektmenni.

Hópur þeirra sem teljast fátækir fer vaxandi. Hópur þeirra sem ekki hafa efni á heilbrigðisþjónustu og lyfjum fer stækkandi.

Með því að taka heilbrigðisþjónustuna úr höndum ríkisrekstrar og samneyslu í of miklu mæli fá þeir sem hvergi sést fyrir forgang að heilbrigðisþjónustunni. Andlitslyftingar hinna betur efnuðu fara að ganga fyrir meðferð eftir slys. Hinum gráðugu finnst það nefnilega allt í lagi.

Ég man eftir atviki í haust sem mér fannst vera dæmigert fyrir þessa þróun. 60 MS- sjúklingar eru á biðlista eftir lyfi sem þeim er neitað um en lyfið kemur í veg fyrir heilaskemmdir, blindu, lömun og skemmdir á líffærum. Þorgerður Katrín hafði samt sem áður geð í sér til þess að gefa strákunum í handboltanum 50 milljónir (af sjóðum almennings)  til þess að leika sér með.

Þegar ég borga skatta vil ég fremur að þeir séu notaðir til þess að tryggja ungu fólki heilsu og kraft til þess að sinna fjölskyldum sínum og atvinnu en að þeir fari í að gefa þeim sem eiga nógan pening færi á að leika sér fyrir almannafé.


mbl.is Danskur einkarekstur á ríkisspena?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Varðandi: 

...treyst hafa misnotað traustið þeim tilgangi að mata krók sinn fyrir sig og sín slektmenn.

...Kröfu um að byggðar séu upp græðgisvarnir 

Skipti út slektmenn og set í staðinn eignarhaldsfélag.

Úr pistli Skilanefndir og smákóngar:  ...Skilanefnd Landsbankans afhendir lögfræðistofu formanns skilanefndarinnar innheimtur upp á hundruð milljóna.

Jakóbína:  Þú talar í fortíð og framtíð.

Þessi s.k. "skilanefnd" er að mata eigin krók núna og leggur það sem fellur til af borðinu pent í eigin vasa.

Hvað segir þú um það ?

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 9.8.2009 kl. 12:50

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Hákon hegðun þessara einstaklinga er ÓGEÐFELLD. Ömurleg að horfu upp á vangetu og áhugaleysi ríkisstjórnarinnar í málum sem SKIPTA MÁLI.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 9.8.2009 kl. 13:01

3 identicon

Bóka hér eftirfarandi innlegg frá sömu síðu:

"Sigurður  8. ágúst, 2009 kl.18:38

Í raun er það svo að Lögfræðistofa Reykjavíkur stjórnar 2/3 af bankakerfi Íslendinga í gegnum formenn í skilanefndum Landsbankans og Kaupþings. Það munu þeir gera a.m.k. næstu 2-3 árin, jafnvel næstu 10-15 ár. Það er umhugsunarvert hvernig FME gat úthlutað svo miklum völdum til svo langs tíma til einnar lögfræðistofu."

Þegar að ég renni yfir efnið í miðlunum sé ég af og til hluti sem standa út úr. Í þessu tilfelli á það við.

Skilanefnd á að vera hafin yfir alla gagnrýni. Fag-mennska og hlutleysi svo eitthvað sé nefnt. Hafa ber í huga að það er verið að ráðstafa því sem eftir er - nú þegar búið er að hreinsa alla sjóði landsmanna.

Þetta er út úr myndinni.

Það á að fá erlenda sérfræðinga í þessa vinnu. Núna.

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 9.8.2009 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband