Ísland er hernumið

Með því að flækja Ísland inn í vef áróðurs og klækja hefur Gordon Brown tekist að hernema Ísland án þess að aðrir hafi tekið eftir en "alþjóðasamfélagið" (fjármálkerfið og alþjóðafyrirtæki).

Almenningur í öðrum löndum hefur ekki tekið eftir hernáminu og merkilegt nokk fæstir íslendingar heldur.

Kanónur Gordons Brown eru Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, ESB og valdhafar hinna svokölluðu vinaþjóða okkar.

Samfylkingin hefur samþykkt að gerast leppur árásarliðsins og fengið Steingrím J Sigfússon í lið mér sér.

Sennilega er það eitt mesta afrek mannskynssögunnar í hernaðarlegum skilningi að leyna heila þjóð því að hún sé hernumin.

Samfylkingin er vel vopnum búin til þessa með langa sögu þöggunar, klækjabragða og leynimakks.

EKKERT sem núverandi ríkisstjórn hefur tekið fyrir hendur hefur leitt af sér samfélagsumbætur. ALLT sem þessi ríkisstjórn hefur gert fram til þessa hefur verið í þágu alþjóðavaldsins.


mbl.is Icesave-umræðu að ljúka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Jakobína.

Það er viss galli að hafa rétt fyrir sér.

Þá mæti ég og segi að þú sért á réttri leið.

En ég vildi að þú ættir framtíðina.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 28.8.2009 kl. 10:53

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þér hér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.8.2009 kl. 13:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband