Sveitamenn sem gerðust heimsborgarar

Ég var að horfa á mynskeið sem var birt í ástralska sjónvarpinu.

Hvers vegna tala erlendir fjölmiðlamenn við Íslendinga sem vinna gegn þjóðinni með alls konar fullyrðingum um lifnaðarhætti íslendinga, þegar þeir koma hingað til landsins.

Ísland er síendurtekið kynnt þannig að allt hafi flotið hér í peningum og að almenningur hafi verið á sífelldu sukki.

Ég verð þó að viðurkenna að ég hef aldrei geta skilið þá sem treysta Davíð Oddsyni og fleiri honum líkum.

það er eitthvað einstaklega barnalegt í íslenskri þjóðarsál.

Flokkshollusta og tryggð sem keyrir þjóðina fram af björgum.

Hér er myndskeiðið dæmið sjálf.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er líka búinn að horfa á þennan þátt. Tókstu eftir glottinu á fv. bankamanninum? Það var greinilegt að hann kann ekki að skammast sín, maðurinn sá, gjörsamlega samviskulaust kvikindi.

Þorskhaus (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 04:23

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Mér fannst nú maðurinn hálf skömmustulegur og vandræðalegur. Annars fékk ég velgju þegar enn eina ferðina var byrjað á þessu andskotans álfakjaftæði. Er ekki nóg að útmála okkur sem hálvita á veraldlega sviðinu?

Jón Steinar Ragnarsson, 4.9.2009 kl. 06:42

3 Smámynd: Birgir Rúnar Sæmundsson

Mér fannst Steingrímur séstaklega barnalegur með sinni dæmisögu um sukkið.

Hann hefði betur komið með concret lýsingu á orsökum hrunsins. En svo heiðarlegur getur Steingrímur ekki verið. Kvótakerfið er upphaf og orsök hvernig komið er í dag.  Fiskurinn í sjónum er baktrygging krónunnar og heldur verðgildi hennar að mestu leiti. Þessa baktryggingu eru pólitísku bófarnir búnir að stela frá þjóðinni og færa útgerðarmönnum til einkaávöxtunar og erfða. (Það er næsta víst að ef stjórnvöld í USA, afhentu leikaraliðinu í Hollywood gullforðabúr Fort Knox til einkaávöxtunar, ylli það byltingu í því landi.)

Með þessu eru þeir búnir að rýja efnahag þjóðarinnar inn að beini.

Veðhæfni ríkisins snarminnkaði,svo og tekjustofn (veiðileyfagjald).

Og enn er ekkert gert í að leiðrétta kvótaáþjánina, hér mun ekkert breytast fyrr en búið er að taka eignarhaldið aftur til þjóðarinnar. Hvað myndi ske ? Krónan snarstyrkist (búin að fá baktrygginguna til baka) undir sig.

En framhjá þessu skauta allir pólitísku gemlingarnir og þegja í hel.

http://www.icelandcrash.com/antisocial-personality.html

Hversu lengi ætla Íslendingar að láta bjóða sér þetta, það eru komin um 20 ár með framsalslög kvótakerfisins !  Þjófalögin.

Birgir Rúnar Sæmundsson, 4.9.2009 kl. 07:37

4 identicon

Í mörg herrans ár hefur mér fundist Alþingi Íslendinga fátækt af virðingarverðum þingmönnum, sem hægt er að bera traust til.  Er það kannke bara þverskurður af þjóðinni?  Ég vona ekki. 

Vigdís Ágústsdóttir (IP-tala skráð) 4.9.2009 kl. 09:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband