Hvað er stjórnmálaforystan að fela?

Það er eitthvað undarlegt við það að einstaklingur sem aldrei hefur komið til Bretland eða Hollands og aldrei unnið í banka eða sjórnsýslu sé álitinn sekur og þess krafist að hann taki út refsingu fyrir að hafa verið of hægri sinnaður af hendi fólks sem er enn hægrisinnaðra.

Að því leyti sem bankaviðskipti hafa verið afhjúpuð er ljóst að flestir þeir sem tóku þátt í bankasvindli eru búsettir í Bretlandi og sprautuðu peningunum inn í breskt bankakerfi.

Umræddir Icesave-peningar komu líklega aldrei til íslands heldur voru notaðir í ævintýri á vegum Björgólfs Thors og vina hans. Þetta þýðir að Icesave peningarnir eru í vinnu í bresku efnahagskerfi. Þar eru greiddir af þeim skattar og þar auka þeir atvinnustig.

Það er verulega umhugsunarvert að Steingrímur Joð skuli hafa staðið fyrir því að samningar um Icesave fóru fram í flýti og af mikilli leynd fyrir luktum dyrum. Málið var drifið áfram í óðagoti en það ber þess veruleg merki að einhverjir eigi undir því að málið fái ekki nánari skoðun.

Það er verulega athyglisvert að öllum ráðum er beitt til þess að halda málefnum Landsbankans innan veggja hans. Fjölskyldu og vinum stjórnmálamanna var komið fyrir í bankanum á ofurlaunum. Starfsemi bankans var ormagryfja sem menn reyna nú af miklum krafti að halda lokinu á. Nýlegar viðræður við Rússa um lán vekja spurningar um aðkomu þeirra að starfsemi Landsbankans.

Það er greinilega mikið áhugamál ríkisstjórnarinnar að keyra Icesave-málið í gegn með offorsi. Íslendingar hafa þó allan hag af því að þetta mál bíði og ekki sé gengið frá því fyrr en öll kurl eru komin til grafar.

Er ekki vert að spyrja hvað það er sem er svo óþægilegt fyrir íslenska valdamenn að þeir hamast við að láta þjóðina taka á sig skuldbindingar upp á hundruð milljarða sem eru fullkomlega óréttmætar.

Laumast í skjóli nætur til Bretlands með afleita samningsmenn til þess að gera íslenska skattgreiðendur að gullnámu Breta og Hollendinga.


mbl.is Pattstaða í IceSave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fínn pistill. Já, miðað við hvernig hlutirnir í þessu máli hafa þróast síðastliðið ár þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu að kæla málið eitt ár til viðbótar. Okkar samningsstaða í málinu mun frekar batna en hitt. Ágætis milliskref meðan á þeirri kælingu stendur gæti verið að vísa IMF úr landi.

Þorgeir Ragnarsson (IP-tala skráð) 23.9.2009 kl. 13:28

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sæl Jakobína.

Ég tek undir þennan pistil þinn að meginstofni til.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 23.9.2009 kl. 14:06

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Sæll Þorgeir

Jú tek undir það við þurfum að losna við IMS

Takk fyrir innlitið og stuðninginn predikainn.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 23.9.2009 kl. 15:19

4 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Takk fyrir þess góðu grein!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 24.9.2009 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband