Engir styrkir til spírandi fjölmiðla en 600 milljónir til fjórflokksins

Endurspeglar þetta áhyggjur Steingríms?

Hvar er lýðræðið?

www.framtidislands.is

Lýðræði fyrir komandi kynslóðir


mbl.is „Mikilvægt að fjölmiðlar bregðist ekki aftur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólasveinninn heimsækir Steingrím J

Helstu sérfræðingar heims, fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og svo Þór Saari vita allir að Ísland er komið í þrot. Það er alveg sama hvernig dæmið er skoðað. Gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins stendur ekki undir helming af vaxtagreiðslum í erlendum gjaldeyri. Þjóðarbúið er löngu komið upp fyrir alla þá mælikvarða sem viðurkenndir eru alþjóðlega að þjóðir standist ekki.

Og hvað segir Steingrímur.

Jú hann á von á Jólasveininum að því er best verður séð.

Kannski er það Grýla sem hann er hræddur við að komi ef við borgum ekki Icesave?


mbl.is Þór Saari í hræðsluleiðangri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er ESB?

Svíar standa grímulausir með Hollendingum og Bretum enda eiga þeir mikilla hagsmuna að gæta í því að þjarmað verði að löndum sem eru að fara á hausinn.

Svíar eiga fjármálakerfin í Eistlandi og Lettlandi og gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að herjað sé á þessi lönd sem neydd eru til að loka skólum og sjúkrahúsum.

Það hefur nú verið talað mikið um hvernig Svíar komust úr kreppunni upp úr nítíu en lítið verið bent á að þeir tóku til á sama tíma að herja á markaði í austantjaldslöndum.

Hollendingar og Bretar ásamt Svíum og fleirum eru ESP. Ríkjabandalagið ESB sem hefur það að meginmarkmiði að mergsjúga jaðarsvæði eins og t.d. Ísland og Austurevrópu.


mbl.is Hótanir ekki frá ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband