Hver er ESB?

Svíar standa grímulausir með Hollendingum og Bretum enda eiga þeir mikilla hagsmuna að gæta í því að þjarmað verði að löndum sem eru að fara á hausinn.

Svíar eiga fjármálakerfin í Eistlandi og Lettlandi og gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að herjað sé á þessi lönd sem neydd eru til að loka skólum og sjúkrahúsum.

Það hefur nú verið talað mikið um hvernig Svíar komust úr kreppunni upp úr nítíu en lítið verið bent á að þeir tóku til á sama tíma að herja á markaði í austantjaldslöndum.

Hollendingar og Bretar ásamt Svíum og fleirum eru ESP. Ríkjabandalagið ESB sem hefur það að meginmarkmiði að mergsjúga jaðarsvæði eins og t.d. Ísland og Austurevrópu.


mbl.is Hótanir ekki frá ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þetta er alveg rétt hjá þér.

Sænskir bankar, eiga alveg gríðarlegar upphæðir inni hjá almenningi í Eystrasalts löndunum.

Eins og þú segir, eru þeir á sama báti og Bretar, og Hollendingar.

Þetta er einfaldlega hagsmunagæsla, og þeirra hagsmunir eru þeir sömu og Breta og Hollendinga.

En, últra "naive" Samfó liðar, halda að ESB snúist einungis um að dýrin í skóginum séu vinir, og enginn sé lengur vondur við neinn.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 3.12.2009 kl. 12:44

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Hverjir eru stærstu hluthafar í Bankanum [Fjárfestinga Evrópska]? Mér skilst að Svíar hafi boðið upp á fasteigntryggð bólguvaxtalán í Eystrasalríkjunum.

Þjóðverjar mun hafa skuldfest mikið í Miðjarðarhafslöndun. Allt í nafni endurnýjungar. Einu sinni á öld? 

Júlíus Björnsson, 3.12.2009 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband