Með bústnar kinnar og bleikan rass

Það er erfitt fyrir saklausar sálir þingmanna sjálfstæðisflokksins að horfa upp á spillinguna sem kraumar í herbúðum vinstri flokkanna. Bústnar kinnar sjálfstæðisþingmanna sem voru orðnar hvítar af þvotti eru nú farnar að bera roða vegna skilningsleysis vinstri stjórnarinnar sem enn hefur ekki áttað sig á að það var hún sem bjó til kreppuna og þá aðalega Steingrímur Joð.


mbl.is Vísar ásökunum þingmanns á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sammála sjálfstæðisflokknum í fyrsta sinn í 20 ár

Jóhönnu og Steingrími er varla stætt á því að gegna ábyrgðarstöðum eftir að hafa sýnt eindæma dómgreindarleysi í Icesavemálinu.
mbl.is Vilja að Jóhanna og Steingrímur víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leki um Icesave

Búið er að birta á netinu skjöl sem lekið hefur verið að sögn fjölmiðla. 

Slóðin á þessi skjöl er  http://icesave3.wordpress.com/


mbl.is Vildu losa ríkið undan Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sársaukinn á heima í London

Í húsi Björgólfs Thors
mbl.is Verið að deila sársaukanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin vinnur enn gegn velferð skattgreiðenda

Kröfurnar vegna Icesave eru kröfur sem mynduðust í einkafyrirtæki Björgólfs Thors. 

Ríkisábyrgð á skuldum Björgólfs Thors er óásættanleg og verður alltaf óásættanleg.

Björgólfur Thor lifir í vellystingum í London á meðan ríkisstjórnin er að taka þjónustu af langveikum börnum og sjúklingum á dánarbeði til þess að greiða skuldir sem mynduðust í einkafyrirtæki hans.  

Ég segi eins og Fintan O'Toole sem er írskur fjölmiðlamaður það þarf að stofna nýtt lýðveldi og koma þessu fólki frá völdum sem hugsar um það eitt að bjarga auðlegð kjölfestufjárfesta (lesist mafíuforingja).

http://www.irishtimes.com/newspaper/opinion/2010/1123/1224283932871.html?sms_ss=facebook&at_xt=4cf809bfded44114,0 


mbl.is Drög að frumvarpi verið gerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var augljóst 2008

Eftir klúður hrunstjórnarinnar þá lá þessi hætta fyrir. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og skötuhjúin hafa síðan innsiglað þessi örlög. 

Búsáhaldabyltingin var andóf gegn ný-frjálshyggjunni, einokunarfyrirkomulagi og leiguliðaskipulagi sem hefur verið tryggt áframhaldandi brautargengi af núverandi ríkisstjórn og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.  


mbl.is Telur millistéttina enda í fátækt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...illa upplýstur stjórnmálamaður þenur raddböndin

það eru stjórnmálamennirnir sem skapa stofnanir og eyðileggja þær.

Í tvö ár hafa stjórnmálamenn barist gegn því að vandinn sé persónugerður (orð Geirs Haarde)

Aumar stofnanir eru afsprengi af klíkuráðningum og það eru einstakir ráðherrar og stjórnmálamenn sem nota stofnanirnar til þess að hygla að þeim sem þeir telja að geti orðið sjálfum sér til framdráttar.

Stofnun er birtingamynd mannlífs og þeirra ákvarðana sem þeir sem eru í forystu taka. Stofnun á sér ekkert sjálfstætt líf óháð einstaklingum.

Mæli með því að Dagur kynni sér fræði um stofnanir þá kannski fattar hann hvað hann er að tala um.  


mbl.is Afhjúpar veikleika flokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband