2009-10-06
Tekjulindir betri en þjóðarskuldir
Íslendingum er margt til lista lagt. Þúsundir þeirra sitja nú heima iðjulausir á kostanað skattborgara. Fólk sem fremur myndi kjósa að leggja eitthvað til.
Væri ekki ágætt að ríkisstjórnin liti aðeins upp frá því að safna skuldum og einbeitti sér þess í stað að finna leiðir til þess að afla þjóðartekna.
![]() |
Met kornuppskera |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2009-10-06
Dregin spriklandi inn í Nýja Ísland
Mér var litið út um eldhúsgluggan og sá þá jarðneskar leifar 20 gæsa hangandi á þvottasnúrunni í næsta húsi.
Annars hef ég verið að hugsa um að fá mér hæsn en held að ég verða að fara á hæsnanámskeið fyrst. Nágrannarnir hljóta að samþykkja að ég sé með hænsn í garðinum fyrst þeir mega vera með hræ hangandi á snúrunni hjá mér.
Sonur minn sem er alinn upp á gamla Íslandi átti erfitt með að gera upp við sig hvað honum fannst um alla þessa dauðu fugla en hann hrópaði upp yfir sig ein tíu lýsingarorð þegar hann leit út um gluggan.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2009-10-06
Einræði valdaklíkunnar
Þessi frétt dregur fram valdaleysi þingsins gagnvart fámennum hópi stjórnarliða og embættismönnum.
Í kjölfar bankahrunsins komu upp háværar raddir um breytingar í stjórnarfari Íslands. Bankahrunið afhjúpaði mjög alvarlega hnökra á stjórnarfari Íslands og ágalla á stjórnsýslunni.
Umræða vaknaði um stjórnlagaþing sem skipað væri einstaklingum óháðum stjórnmálum og stjórnsýslu sem móta skyldu nýja stjórnarskrá sem hefði hagsmuni almennings í landinu í fyrirrúmi.
Almenningur lifir eftir reglum sem aðrir setja, þ.e. kjörnir fulltrúar. Það þarf að tryggja það í stjórnarskrá fullvalda lýðveldis að reglurnar séu settar með almenna velferð almennings í huga.
Fyrir kosningar vorið 2009 voru gefin kosningaloforð um stjórnlagaþing.
Í meðferð stjórnmálamanna breyttist hugmyndin um stjórnlagaþing í ráðgefandi fyrirbæri sem enn gefur stjórnmálamönnum færi á að eyðileggja tilraunir til lýðræðisumbóta.
Breytingar á stjórnarskrá sem tryggðu breytingum á henni þjóðaratkvæðagreiðslu voru ekki settar fyrir kosningar þannig að þær hlytu gildi í Alþingiskosningum árið 2009.
Að loknum kosningum var stjórnlagaþingi frestað og ákveðið að það skyldi eingöngu ráðgefandi en stjórnarskrárbreytingar á forræði Alþingismanna.
Breytinga sem þjóna bættri samfélagsgerð, auknum mannréttindum og réttlátu samfélagi er ekki að vænta nema þjóðin taki sér forræði yfir stjórnarskránni.
Það er verið að safna undirskriftum fólks sem vill að
stjórnlagaþingið verði á forræði fólksins í landinu.
Að þjóðin setji stjórnmálamönnum skilmála til þess að starfa eftir.
![]() |
184 stjórnarfrumvörp boðuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)