Nautheimskur og sauðsvartur almúgurinn

....trúir öllu sem Bjarni segir....eða hvað?

Bjarni kenndi mamma þín þér ekki að það er ljótt að plata?

Frjálslyndi flokkurinn ber virðingu fyrir fólkinu því í flokknum er venjulegt fólk


mbl.is Fráleitt að draga nafn Kjartans inn í atburðarásina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verið að mæla þjóðina til fjandans

Ég er hrifin af kenningum sem Gunnar Tómasson hagfræðingur setur fram á Gang8. Ég skil þessar kenningar þannig að peningar eigi sér tvennskonar rætur. Þeir eru annars vegar framleiðslupeningar og hins vegar snýkjupeningar. Framleiðslupeningar verða til við verðmætasköpum þar sem auðlindum er umbreytt í verðmæti. Snýkjupeningar verða til í fjármálakerfinu og valda verðbólgu vegna þess að það eru engin verðmæti á bak við þá.

Gott væri að fá komment á þennan skilning minn frá spekingum

Mér hefur oft dottið í hug að eina vitið væri að hafna þessum mælingum sem eru að mæla þjóðina til fjandans. Hafna útreikningum fjármálakerfisins á skuldum okkar. Enda eru þetta að mestu platskuldir.

Amen

PS. Er ekkert undarlegt við það að valdhafar eru að slátra framleiðslupeningakerfinu til þess að bjarga snýkjupeningakerfinu?


Sala ríkiseigna...styrkir?

Orðið á götunni birti þessa mynd af einkavæðingu ríkisfyrirtækja í valdatíð sjálfstæðisflokks og framsóknar:

o.jpg


Hverjir voru heildarstyrkirnir til flokkana 2006

Er það leyndarmál?
mbl.is Fengu meiri styrki árið 2006
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árás valdhafanna á lýðræðið

Mútuþægni valdhafanna er ekki án fyrirætlanna.

Með því að þjóna auðvaldinu tryggðu valdhafarnir sér fjárhæðir sem tryggðu þeim yfirráð yfir áróðursmaskínunni.

þeir hafa umbreytt samfélaginu í samfélag olígarka. Almenningur var ekki spurður. Kleptokratían er orðin allsráðandi í stjórnsýslunni. Embætti urðu verkfæri mútuþeganna til þess að skýla glæpamönnum

Völdin urðu til í leynimakki í bakherbergjum.

Áróður í fjölmiðlum sem skrifar lofgreinar um "snjalla" auðkýfinga og "heiðarlega" stjórnmálamenn. Þeir sem rænt hafa þjóðina sífellt lofaðir. Málssvarar lýðræðis hunsaðir af fjölmiðlum.

Flokkarnir sjálfstæðisflokkur, framsókn og samfylking eiga áróðursmaskínuna og kæra sig í raun kollótta um lýðræðið.


Þvinguð til að styrkja framsókn

Ég átti hlutabréf í Kaupþingi árið 2006. Hvaða rétt hafði Sigurður Einarson að taka af mínum hlut í Kaupþingi til þess að styrkja spillt stjórnmálaafl sem mér hefði aldrei dottið í hug að styrkja sjálf?

Er það ekki algjörlega óverjandi að almenningshlutafélög styrki tiltekin stjórnmálaöfl?


Afborganir frá kjölfestufjárfestum?

Eigendur Glitnis og Kaupþings voru í góðri vináttu við framsókn þegar bankarnir voru einkavæddir. Vinátta þeirra við forkólfa framsóknar hefur opnað fyrir þeim mörg tækifæri eins og t.d. að gjöreyða orðspori þjóðarinnar, ræna gjaldeyrishirslur bankanna og minni hluthafa.

BNT (Bjarni Benediktsson) sá einhverja ástæðu til þess að láta háa fjárhæð rakna til framsóknar. Hvað skyldi BNT hafa fengið í staðin?

Eykt hefur fengið góða díla við ríki og bæ. Þessir dílar eru borgaðir úr vasa skattgreiðanda.

Við skulum ekki gleyma því að verðlaun til gjafmildra mútugreiðanda dregst frá upphæðinni á launaseðli okkar.


mbl.is Framsókn opnar bókhaldið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna var flokkunum mútað?

Ótrúlegt klúður sjálfstæðismanna. Ætluðu þeir að koma jarðvarmaauðlindum Orkuveitunnar til útrásarvillinganna (kjölfestufjárfesta sjálfstæðisflokks og framsóknar).

 


Er Árni Johnsen heiðarlegasti þingmaðurinn?

Smábófar settir í tugthúsið meðan að stórglæpamenn ganga lausir

Ábyrgðarleysi yfirvalda

Ráðherra hefur sagt að tal um að borga ekki skuldir sem ríkissjóður hefur ekki stofnað til sé ábyrgðarlaust tal.

Þetta er nokkuð undarleg afstaða hjá yfirvaldinu sem á að hafa velferð þjóðarinnar að leiðarljósi. Það er ábyrgðarleysi af valdhöfum að taka yfir, fyrir hönd þjóðarinnar og komandi kynslóðir, skuldir einkaaðila sem munu koma þjóðinni á vonarvöl.

Þjóðin á ekki að taka á sig þessar skuldir vegna þess að þjóðin stofnaði ekki til þeirra. Valdhafar eru að nota almenning sem verkfæri til friðþægingar við þjóðir sem hafa valdhafanna í skrúfstykki. Þeim langar að valdhafar annarra þjóða líti á þá sem ábyrga aðila en þeim er sama um þjóðina.

Valdhafar annarra þjóða gefa skít í íslensku þjóðina og íslenska valdhafa en hugsa bara um hvernig þeir geta kreist auðlindir af þjóðinni. Segjum NEI. Við borgum ekki skuldir annarra.


Næsta síða »

Bloggfærslur 12. apríl 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband