2009-04-03
Upptaka skulda orðið hið viðtekna?
2009-04-03
Framtíðarlandið
Framtíðarlandið er friðsæld, réttlæti, hófsemi, frelsi og jöfnuður.
Fortíðin hefur einkennst af græðgi, höftum, kvóta, verðtryggingu, ofstýringu með krónu og ofræði og spillingu yfirvalda.
Til þess að stöðva landsflótta ungs fólks þarf að byggja upp von og jákvæða framtíðarsýn. Ungt fólk þarf að eygja von um atvinnu en einnig þarf að endurmeta lífsgildi. Bretta þarf upp ermarnar og hefja uppbyggingu en ekki staldra við orðin tóm.
Ungt fólk hefur hlutverk í uppbyggingarferlinu.
Fyrir tveimur árum sögðu menn að það væru fjórar grundvallarstoðir undir íslensku atvinnulífi. Stærst þessara stoða væri fjármálamarkaðurinn, síðan stóriðja, fiskveiði og ferðamennska. Við stöndum í rústum þessara hugmynda í dag.
Draumórar um alheims fjármálamarkað og stóriðju villtu mönnum sýn. Það gleymdist að hlúa að og efla þekkingu sem styður sköpun verðmæta úr því sem landið gefur af sér. Hugmyndir sem byggðu á röngu mati á því hverjar væru auðlindir þjóðarinnar leiddu til skipulagsslyss. Þetta þarf að leiðrétta.
Það þarf því að endurhugsa menntun. Von framtíðarinnar hvílir á uppbyggingu atvinnulífsins. Það þarf að vera samhljómur á milli menntunar og tækifæra.
Það þarf því að stuðla að menntun sem skapar þekkingu á sjálfbærni og nýsköpun.
Það þarf að aðlaga og þróa skólanna að nýju samfélagi, nýjum aðstæðum og nýjum tækifærum.
Við þurfum að kasta þeirri hugmynd ný-frjálshyggjunnar að verðmæti geti orðið til úr engu. Til þess að skapa verðmæti þarf að virkja fólk, mannauðinn í landinu, nýta auðlindirnar og skapa til þess þekkingu.
Atvinnutækifærin eiga að spretta upp af rótinni. Við eigum að hlusta á frumkvöðlanna. Við eigum að vernda höfuðstólinn, landið sem börnin okkar erfa. Atvinnutækifærin tengjast landinu, hafinu og orkunni.
Helsta vandamál samtímans eru gríðarlegar erlendar skuldir og háar vaxtagreiðslur sem greiða þarf í erlendum gjaldeyri, ónýt króna, skuldir heimilanna, skuldir fyrirtækjanna og atvinnuleysi.
Hvert og eitt þessara vandmála er lamandi en það þýðir ekki að missa móðinn. Það þarf að takast á við vandann. Hvert og eitt þessara vandamála krefst sérstakrar athygli. En undirstaða þess að komast úr kreppunni er atvinnulífið, aukin framleiðsla fyrir innanlandsmarkað og aukinn útflutningur.2009-04-03
Vinnur Egill Helgason í banka?
Hvernig getur einstaklingur sem ekki starfar í banka brotið bankaleynd?
Ég hélt að það væru starfsmenn og stjórnendur banka sem þyrftu að gangast undir skyldur um bankaleynd og beri þar með ábyrgð á því að upplýsingar leki ekki út.
![]() |
Viðskiptaráðherra vill blaðamenn úr snörunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Byggðarlögin á landsbyggðinni munu reynast bjargvættur í kreppu. Þegar líða tekur á kreppuna munu einstaklingar sættast á að flytja sig um set.
Undanfarin ár hefur myndast kergja milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðisins en við þurfum að læra að lít á landið sem heild en ekki sem höfuðborgarsvæðið með annað hangandi við.
![]() |
Hræðsla við að vinna á landsbyggðinni? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Einokun og ofurlaun fárra er sjálfstæðismönnum hugleikin.
Þeir vilja ekki aðhald í stjórnarskrá.
Eldgömul og ónýt stjórnarskrá er eitt af þeim verkfærum sem þeir geta notað til að hafa hemil á þjóðinni.
![]() |
Rætt um stjórnarskrá til klukkan 2 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)