Voru bankareikningar í eigu íslenskra stjórnmálamanna sem áttu fjármuni í breskum bönkum frystir?

Það gæti skýrt allan æsinginn og áróðurinn við að leggja þennan ósóma á saklausan almenning.

Gæri trúað að nokkrir fræðimenn eigin einnig fjármuni sem frystir hafa verið í breskum bönkum

Ekki þarf að efast um að Icesave-samningurinn hugnist einnig nokkrum úr útrásarliðinu sem eiga hagsmuni að verja


mbl.is Samkomulag í fjárlaganefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eiga að bera tapið af áhættusækni breskra einstaklinga?

Þetta er grundvallarspurning í Icesave-deilunni

Hall bendir einmitt á þessa staðreynd. Fjölmargir einstaklingar í Bretlandi lögðu fjármuni inn á Icesave-reikninga sem báru mjög háa vexti. Mjög háir vextir endurspegla áhættu. Þetta áttu þessir fjármagnseigendur að vita og þeir áttu líka að vita að þeir myndu bera tapið ef viðskiptin myndu bregðast.

Þetta skilja sérfræðingar Bretanna.

Ástæðan fyrir því að þeir heimta að tapið verði fært yfir á íslenska skattgreiðendur endurspeglar ekki heimsku þeirra heldur klókindi. Það má hinsvegar spyrja hvað atferli íslenskra stjórnmálamanna endurspeglar.

Íslensk stjórnvöld hafa gjörsamlega brugðist íslenskum almenningi sem kaus þau til þess að verja sig í þeirri efnahagsárás sem Bretar upphófu gegn Íslandi í haust og jafnvel fyrr.

Við skulum ekki gleyma því að Gordon Brown hvatti sveitafélög til þess að leggja fjármuni inn á þessa reikninga.

Stríð Breta er hugmyndafræðilegt

Gordon Brown hefur notið dyggs stuðnings íslenskra stjórnvalda við að innræta íslensku þjóðinni sektarkennd vegna viðskipta sem þeir eiga enga aðild að.

Það er þess vegna sem mér er misboðið

Því miður þá kusum við yfir okkur vanburða stjórnmálamenn


mbl.is FT: Ábyrgðin sameiginleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur heldur uppi rökum andstæðinganna

Ég hef ALDREI horft upp á annað eins klúður og framgöngu ríkisvaldsins vegna Icesave-deilunnar.

Steingrímur lagði hausinn að veði vegna þessa samning en hefur límt hausinn fastann eftir að hafa klúðrað málinu alfarið.

Gleymum ekki að innihaldi samningsins var leynt fyrir þingmönnum og bæði Steingrímur J. Sigfússon og Svavar Gestsson héldu því fram fullum hálsi að þeir hefðu náð hagstæðum samningum. Þetta hefur verið hrakið af fjölda sérfræðinga og þar á meðal einum fremsta sérfræðingi heims í skuldaskilum þjóða, Lee Buchheit.

Fjöldinn allur af staðreyndum málsins hefði getað styrkt stöðu Íslands ef Steingrímur hefði haft vilja til þess að nýta sér það. En, NEI, Steingrímur sá ekki ástæðu til þess.

Fréttin í Telegraph ber með sér að þeir sem þeir sem tóku þátt í óhæfunni voru margir hverjir Bretar eða af öðru þjóðerni en íslensku eða búsettir í Bretlandi.

Að öllum líkindum barst mjög lítill hluti þess fjármagns sem lagt var inn á Icesave nokkurn tíma til Íslands og gögnuðust á engan hátt íslenskum almenningi sem nú er rukkaður. Fjármálaráðherrann hefur aldrei séð ástæðu til þess að draga fram þessa staðreynd né heldur íslenskir fjölmiðlar sem virðast líta á það sem sitt aðalhlutverk að þjóna ríkjandi valdhöfum.

Í greininni segir einnig að Bretar eigi mjög erfitt með að standa undir þeirri byrði sem bætur til innistæðueigenda skapa. Hvað þá með Íslendinga?


mbl.is Telegraph: Ekkert venjulegt hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirvararnir þjóna Bretum og Hollendingum

Fyrirvararnir við frumvarpið eru sennilega hannaðir af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og seldir þingmönnum.

Fyrirvararnir gera samninginn í raun enn skotheldari fyrir Breta og Hollendinga en loðið orðalag sumstaðar leyfir breiða túlkun textans.

1. Vissir ágallar eru á samningnum sem Íslendingar hefðu geta notfært sér á síðari stigum en fyrirvararnir virðast vera út garði gerðir til þess að varna því.

2. Allt svigrúm til margræðrar túlkunar þjónar í raun fyrst og fremst Bretum og Hollendingum sem munu beita aflsmun til þess halda uppi þeirra túlkun.


mbl.is Hagvöxtur stýri greiðslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona voru fréttirnar frá Íslandi í haust

Ekki hefur heyrst eitt einasta orð frá ríkisstjórninni um að auka matvælaöryggi á Íslandi. Þau hugsa um að eitt að redda sjálfum sér og sökkva landinu í skuldir.

Í dag hef ég í fyrsta sinn skammast mín fyrir að vera Íslendingur.

Það er á ábyrgð mútuþægra samfylkingarmanna og Vinstri grænna sem láta beygja sig en útrásarliðið brosir enda ganga þau erinda þess.

Svona voru fréttirnar frá Íslandi í haust.

Ég spái því að allt verði hér vitlaust þegar almenningur fattar hvað ríkisstjórnin er að gera. Hingað til hafa það aðalega verið rólegir bloggarar sem hafa áttað sig á því.


Pungspark hollenska fjármálaráðherrans

Það er ógeðfellt að horfa upp á hollenska fjármálaráðherran sparka í punginn á kollega sínum sem liggur í keng.

Hollenski fjármálaráðherran segir: Hollendingar hafi ekki gengið hart fram, heldur tekið kurteislega yfir ábyrgð á málinu af íslensku ríkisstjórninni. Það hafi verið vinargreiði af hálfu Hollendinga segir fjármálaráðherran.

Mér er full alvara þegar ég segi að mér verður flökurt þegar ég horfi upp á þetta.

Við stjórnarflokkana segi ég: Snúið ykkur að störfum sem þið ráðið við.


mbl.is Magma vill kaupa hlut OR í HS Orku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. ágúst 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband