Er innheimta hlutverk ESB?
Ísland er prófsteinninn. Um það er ekki deilt að skuldir jukust langt úr hófi fram við útlánavæðingu" síðustu áratuga. Á nýliðnu Greenspan tímabili var lánsfjármögnuð neyzla og síhækkandi verði fasteigna, hlutabréfa og annarra fjáreigna talin vera jafngildi verðmætasköpunar". Við erum reynslunni ríkari núna. Verð fasteigna og hlutabréfa er hrunið en skuldirnar standa eftir. Núna, þegar bólan er sprungin, blasa við okkur tvenn viðfangsefni. Hvernig endurreisum við framleiðslukerfið eftir áralanga útlánavæðingu? Og hvernig gerum við upp skuldirnar?
Á því síðarnefnda er mikilvægur evrópskur flötur. Hvernig standa evrópuríki að innbyrðis skuldauppgjöri? Spurningin er sérstaklega mikilvæg fyrir minni ríki sem tóku lán í erlendri mynt og eru núna í miklum vanda. Lánardrottnar þeirra eru ríki sem gáfu bönkum lausan tauminn til að skuldsetja heilar þjóðir á gullöld útlánavæðingarinnar". Afleiðingin blasir við í erfiðri skuldastöðu Íslands gagnvart Bretlandi og Hollandi, Lettlands gagnvart Svíþjóð, og Ungverjalands gagnvart Austurríki. Og dæmin verða væntanlega fleiri.
Vandinn er sá að stjórnvöld frumkvöðla útlánavæðingarinnar" virðast fúsari til innheimtustarfa fyrir þá og aðra þegna sína en þátttöku í uppbyggjandi átaki við að leysa úr skuldavanda Evrópu og heimsins alls. Jafnframt reyna þau að fá alþjóðastofnanir til að leggja málstað þeirra lið með hótunum um að stuðningur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eða innganga í ESB sé í veði. Það er eftirtektarvert að í almennri umræðu í Hollandi og víðar virðist vera litið á slíka fjárkúgun sem sjálfsagðan hlut væntanlega í ljósi þess að 'skuld er skuld'. Skuldarar hafa notið lífsins með okkar peningum og ber því að borga reikninginn, með ströngum aðhaldsaðgerðum ef svo ber undir.
Þessi skýra og einfalda afstaða horfir fram hjá ýmsum óþægilegum staðreyndum. Í fyrsta lagi hafa lánastofnanir hagnast vel á óhóflegri skuldsetningu þjóða. Útreikningar fyrir Lettland sýna að tekjur erlendra banka af vöxtum og fasteignum voru hærri hvert ár frá 1995 til 2008 en sem nam lánum þeirra til Lettlendinga. Það var því hreint útstreymi á fjármagnsreikningi. Viðkomandi bankar (aðallega sænskir) hafa nú þegar hirt hagnað sinn en eftirláta Lettlandi áframhaldandi skuldagreiðslur. Undir forsæti Svíþjóðar hvetur ESB til strangra aðhaldsaðgerða af Lettlands hálfu svo að komist verði hjá greiðslufalli.
Í öðru lagi er orsök vandans að hluta til hegðun banka og erlendra lánardrottna í aðdraganda kreppunnar. Nýlega voru birt skjöl sem sýna að stórir Kaupþingshluthafar stuðluðu að hruni bankans með úttekt á andvirði stórra ótryggðra lána til þeirra sjálfra. Aðgerðir Hollendinga og Breta voru ekki síður skaðlegar. Íslenzk stjórnvöld höfðu níu mánuði til að semja um uppgjör við innstæðueigendur skv. ESB tilskipun 94/19/EC. Það hefði hugsanlega leitt til farsællar lausnar ef hollensk og brezk stjórnvöld hefðu kosið að miðla málum. Í staðinn ákváðu þau að lítt hugsuðu máli að borga eigin ríkisborgurum út innstæður þeirra og sendu reikninginn, ásamt hótunum, til Íslands. Gordon Brown beitti jafnframt hryðjuverkalögum til að frysta reikninga sem féllu undir íslenzka lögsögu. Þar með glataðist að fullu það sem e.t.v. hefði mátt bjarga. Með hliðsjón af slíkri hegðun þvert gegn tilskipunum ESB er það hámark hræsni þegar hollenski utanríkisráðherrann Maxime Verhagen hvatti Ísland 21. júlí sl. að sýna í verki að það taki ESB tilskipanir alvarlega".
Í þriðja lagi skal varast að láta sem hér sé um venjulega deilu milli lánardrottna og skuldara að ræða. Fyrir Ísland líkt og Lettland snýst málið um það hvort komist verði hjá algjöru efnahagshruni. Hagkerfið fer einfaldlega í greiðsluþrot ef innheimta á skuldina að fullu. Verg landsframleiðsla Íslands 2008 var 12.3 milljarðar evra. Vegna kreppunnar mun hún e.t.v. verða innan við 8 milljarða í ár, og aðeins að hluta í gjaldeyri. Hollenskar og brezkar kröfur nema samtals 4 milljörðum evra, eða meira en 50% af VLF. Samtals er áætlað að erlendar heildarskuldir Íslands nemi um 240% af VLF. Engin þjóð hefur áður endurgreitt erlenda skuld af þessari stærðargráðu. Ísland skortir auk þess útflutningsgetu til að afla nauðsynlegs gjaldeyris til að endurgreiða skuldina. Ísland ætti því ekki annarra kosta völ en að fjármagna afborganir með nýjum lántökum. Viljum við knýja skuldsettar þjóðir inn á slíka tortímingarbraut? Viljum við að Ísland, Lettland og aðrar þjóðir nái að rétta sig við, eða kjósum við að leggja þeim augljóslega óbærilega skuldabyrði á herðar?
Í það minnsta hljótum við að huga skynsamlega að eigin hag. Íslenzkt hagkerfi í skuldafjötrum mun aldrei geta endurgreitt nema hluta skuldarinnar. Spurningin er hvort við höldum fast við óraunhæfar kröfur eða stefnum að raunhæfu uppgjöri? Og hvað með evrópska samhygð sem Verhagen utanríkisráðherra og aðrir hollenskir stjórnmálamenn styðja? Verður hún sett skör lægra en kröfur lánardrottna?
Það verður ekki komist hjá því að hugsa til Þýzkalands á þriðja áratug síðustu aldar. Keynes var þá sem hrópandinn í eyðimörkinni og varaði við því að Þýzkaland gæti ekki staðið undir kröfum bandamanna um stríðsskaðabætur. En Þýzkaland var knúið til að takast þær á herðar og stóð í skilum um hríð með lántökum, enda ekki annarra kosta völ. Þetta jók einungis greiðslubyrði landsins og rak aðþrengda þjóð í útbreidda arma öfgafullra stjórnmálamanna. Nítíu árum síðar vitum við lok þeirrar sögu. Við aðstæður sem kröfðust vizku og framsýni reyndust þjóðir bandamanna ótrúlega skammsýnar.
Við vitum ekki hvert aðþrengdir Íslendinga, Eystrasaltsbúar eða Ungverjar kynnu að snúa á komandi tíð. Á þessum punkti í samtímasögunni vitum við það eitt að vandinn er okkar allra. Við tókum öll þátt í því að skuldsetja hagkerfi úr hófi fram, og okkur ber því að vinna úr vandanum saman. Það hefur ekki gengið vel til þessa. Vaxandi spennu gætir í samskiptum þjóða og stuðningur við Evrópusambandið fer minnkandi í nýjum og væntanlegum aðildarríkjum. Hvað mun barnabörnunum finnast um okkur eftir nítíu ár? ***
Höfundar:
Dirk J. Bezemer, lektor, University of Groningen, Hollandi
Michael Hudson, prófessor, University of Missouri, Bandaríkjunum
Gunnar Tómasson, hagfræðingur
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2009-08-31
Þetta er árangursríkasta fjárkúgun sögunnar
Ég hef talað við fólk af mismunandi þjóðerni um atlögu Breta og Hollendinga að Íslandi og fengið skýr viðbrögð....Amerísk kona: but this is extortion....Sænsk kona: ja men detta är ju utpressning...
Á MBL segir:
Það er merkilegt að opinber umræða í Hollandi... virðist telja fjárkúgun af þessu tagi fullkomlega réttlætanlega. Hún byggir á því, að skuld sé skuld og þeir sem fái lánað verði að borga. Ríkisstjórn Íslands og íslenska þjóðin verða að herða beltið," segir í greininni.
Hér er komið inn á grundvallaratriði í Icesave deilunni. Hér segir að "skuld sé skuld og þeir sem fái lánað verði að borga." Stóra spurningin hér er hverjir fengu lánað og hverjir lánuðu. Báðir þessir aðilar eru gerendur og höfðu áhrif á atburðina.
Íslenskur almenningur var EKKI gerandi. Íslenskur almenningur fékk ekki lánað hjá Hollendingum.
Kjarni málsins er að það er verið að kúga saklaust fólk til þess að taka á sig byrðarnar vegna viðskipta annarra, þeirra sem tóku áhættu með því að eiga viðskipti við Icesave og þeirra sem stofnuðu Icesave og stálu peningunum.
Allt þetta ferli ber vott um hnignandi siðmenningu vestrænna ríkja og þá sérstaklega Hollendinga og Breta og ekki síður Íslands ef það samþykkir þessa óhæfu.
![]() |
Segja Íslendinga beitta fjárkúgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.9.2009 kl. 02:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2009-08-31
AGS í sinni tærustu mynd
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur það sem fyrsta markmið á sinni stefnuskrá að aðstoða stóriðju við á komast á brunaútsölur í Þeim ríkjum þar sem hann nær ítökum.
Ríkissjórning hefur hvað eftir annað hent tugum milljara í fyrirtæki í þeim tilgangi að borga skuldir útrásar liðslins. Sjóvá og BYR eru gott dæmi um þetta. það eru alltaf til nægir fjármunir til þess að fjármagna bankanna sem á síðan að færa í hendur erlendra áhættufjárfesta sem geta síða gert íslenska skuldara að gullnámu sinni.
Magma Energy er sagt vera leppur Ríó Tinto og hefur komist inn á Ísland í gegn um skúffufyrirtæki í Svíþjóð. AGS er leppur Alþjóðafyrirtækja og fjármálastofnana en Ríkisstjórn Íslands er leppur AGS.
Þessu verður að sporna við.
Græðgi stóriðjunnar á sér engin takmörk og sjáfbærni er henni framandi hugtak.
![]() |
Magma fær hlut Orkuveitunnar í HS Orku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2009-08-31
Ríkissjóður styrkir Jón Ásgeir
Hver man ekki eftir því þegar Karen Millen sté fram sem einn að eigendum BYRs. Karen Millen er eiginkona Kevins Stanfords eins stærsta skuldara í Kaupþingi. Sigrún Davíðsdóttir kallar þá Kevin Stanford, sir Tom Hunter og skotann Don McCharthy umsvifabræður Jón Ásgeirs.
Dóttir forseta Íslands Guðrún Tinna Ólafsdóttir hefur verið einn af nánum samstarfsmönnum Jóns Ásgeirs og situr t.d. í stjórn Haga ásamt Jóhannesi og Jóni.
Árið 2008 ryksuguðu Baugsmenn BYR með yfir 13 milljarða arðgreiðslum. Það hefur verið spurt að því hvort að BYR hafi lánað Jóni Ásgeiri einn og hálfan milljarð til kaupa á 362 eða hinum svokölluðu Baugsmiðlum.
Byr tapaði 30 milljörðum á síðastliðnu ári og leynd ríkir yfir því hefjir eru stærstu lántakendur BYRs.
Og hverjir borga? Skattgreiðendur?
BYR er komin í þrot og krefst 11 milljarða innspýtingu úr ríkissjóði.
Þetta er að gerast NÚNA en ekki 2007
Sjálfstæðisflokkur og samfylking hafa þegið tugi ef ekki hundruð milljóna í styrki frá fyrirtækjum sem rekja má til Jón Ásgeirs og Björgólfs Thors. Eins og fram kemur þá liggja þræðir frá forseta Íslands inn í viðskiptaveldi Jóns Ásgeirs.
Samfylkingin krefst þess að skuldir Björgólfs Thors verði gerðar að skuldum þjóðarinnar
Sjálfstæðisflokkurinn krefst þess að forsetinn skrifi undir lög um ríkisábyrgð vegna Icesave (skulda Björgólfs Thors)
Forsetinn tengist þessu liði sterkum böndum og það kemur mér á óvart ef hann gefur ekki frat í 7000 Íslendinga sem hafa skrifað upp á að ríkisábyrgðin verði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Með fjölmiðlanna á sínu valdi fer þetta lið sínu fram með lygum og blekkingum.
Ísland er ekki í góðum höndum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)