Ríkissjóður styrkir Jón Ásgeir

Hver man ekki eftir því þegar Karen Millen sté fram sem einn að eigendum BYRs. Karen Millen er eiginkona Kevins Stanfords eins stærsta skuldara í Kaupþingi. Sigrún Davíðsdóttir kallar þá Kevin Stanford, sir Tom Hunter og skotann Don McCharthy umsvifabræður Jón Ásgeirs.

Dóttir forseta Íslands Guðrún Tinna Ólafsdóttir hefur verið einn af nánum samstarfsmönnum Jóns Ásgeirs og situr t.d. í stjórn Haga ásamt Jóhannesi og Jóni.

Árið 2008 ryksuguðu Baugsmenn BYR með yfir 13 milljarða arðgreiðslum. Það hefur verið spurt að því hvort að BYR hafi lánað Jóni Ásgeiri einn og hálfan milljarð til kaupa á 362 eða hinum svokölluðu Baugsmiðlum.

Byr tapaði 30 milljörðum á síðastliðnu ári og leynd ríkir yfir því hefjir eru stærstu lántakendur BYRs.

Og hverjir borga? Skattgreiðendur?

BYR er komin í þrot og krefst 11 milljarða innspýtingu úr ríkissjóði.

Þetta er að gerast NÚNA en ekki 2007

Sjálfstæðisflokkur og samfylking hafa þegið tugi ef ekki hundruð milljóna í styrki frá fyrirtækjum sem rekja má til Jón Ásgeirs og Björgólfs Thors. Eins og fram kemur þá liggja þræðir frá forseta Íslands inn í viðskiptaveldi Jóns Ásgeirs.

Samfylkingin krefst þess að skuldir Björgólfs Thors verði gerðar að skuldum þjóðarinnar

Sjálfstæðisflokkurinn krefst þess að forsetinn skrifi undir lög um ríkisábyrgð vegna Icesave (skulda Björgólfs Thors)

Forsetinn tengist þessu liði sterkum böndum og það kemur mér á óvart ef hann gefur ekki frat í 7000 Íslendinga sem hafa skrifað upp á að ríkisábyrgðin verði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Með fjölmiðlanna á sínu valdi fer þetta lið sínu fram með lygum og blekkingum.

Ísland er ekki í góðum höndum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hefurðu ekki heyrt af því að arðræninginn Ross í Magma Energy er betlandi hér með báða lófa vísandi upp og biður um kúlulán til að "kaupa" sig inn í HS orku ?

Kúlulán með veði í fyrirtækinu að sjálfsögðu.

Alveg eins og í "gamla daga"

Skyldu einhverjir útvaldir - skósveinar Kanadamannsins - fá væna "arðgreiðslu" af ímynduðum hagnaði egnarhaldsfélagsins - loftbólunni - ef þetta gengur í gegn ? Hvaða einstaklingar bíða eftir peningunum ?  "Follow the money"... Hver ?

 Alveg eins og í "gamla daga" !

Ross fékk boð á Bessastaði til Ólafs og Dorritar í boði íslenska ríkisins.

Alveg eins og í "gamla daga"

Og svo frv....

Sýningin heldur áfram - en núna á kostnað afkomenda okkar.

Ábótinn (IP-tala skráð) 31.8.2009 kl. 12:30

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já Ólafur Ragnar tengist viðskiptalífinu sterkum böndum. það er full ástæða til þess að kanna hagsmuni hans í tengslum við jarðvarmaauðlindirnar sem hafa verið hans hjartans mál um langa hríð.

Það sama má segja um Össur Skarphéðinsson

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 31.8.2009 kl. 13:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband