Ég hef nú oft túlkað það þannig að Steingrímur telji þjóðina frekar heimska og undrast því ekki að blaðamaðurinn hafi lesið það úr tali hans. Sem dæmi má nefna þegar hann kynnti Svavars-samninginn til leiks sem glæsilegan og taldi að þjóðin myndi gleypa það.
Við getum þó alltjent huggað okkur við það að ekkert segir í stjórnarskrá um undanþágur vegna heimsku þjóðarinnar en ákvæðið hljómar svona:
Nú synjar forseti lagafrumvarpi staðfestingar, og fær það þó engu að síður lagagildi, en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningabærra manna í landinu til samþykktar eða synjunar með leynilegri atkvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi, ef samþykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu (áherslur eru mínar).
Það er nú bráðum liðið ár frá því að samstaða þjóðarinnar leiddi til falls hrunstjórnarinnar:
![]() |
Um túlkun blaðamanns að ræða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2010-01-17
Fílabeinsturninn veikir skynbragð
Stjórnmálamenn virðast tapa skynbragði og eðlilegri sýn á fólk þegar þeir hafa hreiðrað um sig í fílabeinsturninum í tugi ára.
Þetta þekkja þjóðir sem eru með þróað stjórnarfar og skipta út reglulega. Menn þurfa nefnilega að viðra sig eftir skítinn sem sest bæði í eyru og augu eftir langvarandi setu á þingi.
Geðlæknirinn í Silfri Egils fjallaði ágætlega um ýmsar hliðar á gæðum samfélags. Ég varð fyrir svipaðri reynslu og hann þegar ég flutti til landsins fyrir 20 árum síðan. Umræðan er áróðurskennd, villandi og menn draga sífellt fram öfgar og rökstyðja ekki mál sitt.
Steingrímur virðist hafa yfirgefið allt sem hann sagði sig standa fyrir þegar hann var í stjórnarandstöðu. Þegar ferill hans er skoðaður síðan hann settist í ríkisstjórn má sjá eftirfarandi:
- Steingrímur vinnur að því hörðum höndum að gera skuldir Björgólfs Thors að skuldum barna okkar.
- Steingrímur átti aðild að því að þröngva þjóðinni án hennar samþykkis í aðildarumsókn að ESB.
- Steingrímur hefur alið á foringjahyggju sem er í algjörri andstæðu við lýðræðishugsjónir og einangrað sig með já-fólki sínu og virðist nú telja þjóðina of heimska til þess að setja sig inn í Icesave málið.
- Steingrímur hefur alið á leyndarhyggju og margsinnis verið staðinn að því að fara ekki rétt með og að villa um fyrir þjóðinni.
- Steingrímur leyfði því að gerast að auðlindum á Suðurnesjum var komið í hendur kanadískra fjárglæframanna vegna þess að 3 milljarða vantaði inn í dæmið en þá hafði hann nýlega hent 16 milljörðum inn í Sjóvá en fjárglæframenn stálu bótasjóðnum félagsins sem var stjórnað af Þór Sigfússyni sem er bróðir Árna Sigfússonar sem hefur verið að setja orkufyrirtækin á Suðurnesjum ásamt bæjarfélaginu á hausinn.
- Steingrímur J Sigfússon hefu eftirlátið tvo af þremur bönkum til erlendra eða innlendra leyni-áhættufjárfesta.
- Steingrímur er alls ekki að taka á spillingarmálum í stjórnsýslu og bönkum og réði kúlulánadrottninguna Elínu sem forstjóra bankasýslunnar.
- Steingrímur J Sigfússon skrifaði undir viljayfirlýsingu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og óskaði eftir áframhaldandi veru þessara erki-kapitalista her á landi. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur skilið hefur eftir sig slóð eymdar um heim allan.
- Steingrímur hefur valið að skattpína fremur litla atvinnurekendur með tryggingargjaldi fremur en að ná inn skatttekjum af stóriðjunni sem eru að arðræna landið.
- Steingrímur sækist eftir áframhaldandi virkjunum og uppbyggingu stóriðju.
Þegar þessi atburðarrás er skoðuð ber hún merki um hina raunverulega stefnu sem Steingrímur starfar eftir en stefna Steingríms á engan samhljóm með stefnu VG.
Stefna Steingríms er því
- Leyndarhyggja
- Foringjaræði (einræði)
- Aðild að ESB
- Einkavæðing
- Sala auðlinda úr landi
- Nýta náttúruperlur til orkufreks iðnaðar
- Arðrán alþjóðafyrirtækja á auðlindarentu þjóðarinnar
- Niðurrif velferðarkerfis með tilstuðlan AGS
- Forheimskum almúgans
![]() |
Ekki of flókið árið 2003 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)