2010-11-22
Þekkingu á stjórnlagaþing
Vönduð og virk stjórnarskrá verður til í höndum fólks sem hefur þekkingu, reynslu og framtíðarsýn.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

stjórnsýslufræðingur á
stjórnlagaþing
7319
Mætum á kjörstað og veljum vel menntaða konu sem tekur
atvinnufrelsi, velferð og öryggi almennings
fram yfir þarfir bankaeigenda.
![]() |
Talað var við nærri 500 frambjóðendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
2010-11-22
Já, en ekki utanbókarlærdóm
Við þurfum að skilja lýðræðið og hlutverk stjórnarskrárinnar sem verndara lýðræðis. Við þurfum að læra að taka þátt í að móta samfélagið.
Þekking er hreyfiafl í mótun samfélags. Þess vegna er skilningur okkar á lýðræði grunnforsenda framfara og réttlætis.

![]() |
Stjórnarskráin verði skyldunám |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2010-11-22
Stuðningur og 20 milljón pund
Frá því segir á Eyjunni að:
Stofnað hefur verið félag áhugamanna um réttláta málsmeðferð í landsdómsmáli Geirs H.

Haarde, fyrrverandi forsætiráðherra. Félagið heitir Málsvörn, og er skráð á Pétur J. Eiríksson, fyrrum forstjóra Icelandair Cargo, og núverandi stjórnarformaður Portus Group. Pétur er einnig stjórnarmaður í Hagar hf.
Geir segir:
Pétur J. Eiríksson og ég höfum verið vinir og samstarfsmenn í meira en 40 ár. Við sátum saman í stjórn Heimdallar og í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna. Einnig unnum við saman sem blaðamenn á Morgunblaðinu í mörg sumur á námsárum okkar beggja,
Pétur er eins og fram kemur í fréttinni stjórnarmaður í Högum sem er eigandi All Saints. Kaupþing og Glitnir hafa samkvæmt frétt Mail Online lánað All Saints 20 milljón pund.
Í Mail Online segir: A new £20million load agreement is paving the way to a 'quantum leap' for All Saints
Hvar fá Kaupþing og Glitnir 20 milljón pund til þess að veita kaupréttarlán? Eru þau tekin af gjaldeyrisvaraforðaláninu sem börnin okkar eiga að borga?
Hverjir eru eigendur Kaupþings og Glitnis?
![]() |
Átelur vinnubrögð landsdóms |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)