Það er eitthvað hættulegt í toppstykkinu

Las þennan pistil á Silfur Egils

Merkilegt

Davíð Oddson gefur Björgólfi Thor ríkisfyrirtæki

Ingibjörg Sólrún og Geir Haarde ferðast um allar jarðir og ljúga því að Björgólfur Thor sé heiðursmaður

Björgólfur Thor fremur RÁN sem á sér ekki líka í sögunni

Össur Skarphéðinsson vill hjálpar Björgólfi Thor að græða á þýfinu

Og nú er einhver Eiríkur sem fáir þekkja allt í einu orðin sökudólgurinn

ABSÚRD

 


mbl.is „Það fannst eitthvað hættulegt í kjallaranum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn traðkaði á réttarríkinu í tuttugu ár

Réttarríkið byggir á því að almenningur geti treyst framkvæmdavaldinu og dómstólunum

Björn Bjarnason raðaði vildarfélögum sínum í hæstarétt í tíð sinni sem dómsmálaráðherra. 

Hagsmunapot af slíkri stærðargráðu gerir menn ótrúverðuga

Björn Bjarnason ástundaði vanabundin vinnubrögð þegara hann raðaði vinum sínum í rannsóknarnefnd Alþingis

En Þorvaldur Gylfason segir

Vanræksla ríkisstjórnarinnar er ekki bundin við ráðleysi í endurreisnarstarfinu og efnahagsmálum. Ríkisstjórnin þurfti að verða við áskorunum okkar, sem mæltum frá byrjun með erlendri rannsókn á tildrögum hrunsins, en hún færðist undan. Undir stjórn óháðra erlendra manna hefði rannsóknin verið hafin yfir sanngjarnan vafa um hlutdrægni.


Íslendingar rísa gegn siðleysi alþjóðasamfélagsins

Bretar og Hollendingar kalla yfirlýsingar sem þvingaðar eru fram með kúgun skuldbindingar

Íslenskir ráðamenn vilja kvitta undir nauðungarsamning til þess að gera sér lífið þægilegt

Stóriðjan fremur arðrán upp á hundruð milljarða 

Líu fremur arðrán upp á hundruð milljarða

Ríkisstjórnin þjónar þessum aðilum og fjármálakerfinu

EN ÍSLENSKA ÞJÓÐIN SEGIR NEI

Um það snýst málið


mbl.is Furðar sig á ummælum ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimska eða neyð

Ef Icesave deilan fer fyrir alþjóðadómstóla og alþjóðadómstóll gefur út þann dóm að búið sé að hanna kerfi sem réttlætir það að mér beri að borga skuldir sem eru afleiðingar af glæpastarfsemi Björgólfs Thors þá verð ég að beygja mig undir það.

Ég er þá neydd til þess að fórna velferð aldraðra foreldra og menntun barna minna til þess að Björgólfur Thor geti áfram lifa í velllystingum í London og lúrt á þýfinu sem hann hefur komið fyrir í skjóli.

Ég neita hins vegar að fórna velferð barna minna og foreldra af einskærri heimsku. Bretar og Hollendingar fengu illa menntaða og reynslulausa nefnd og þeir hugsuðu einfaldlega þetta er fólk sem við getum tekið á heimskunni.

Ég neita að vera hluti af heimskunni. 


mbl.is Kosningarnar blasa við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur gefur skít í fólkið

Frá þessu segir í norska fréttablaðinu ABCnyheter
mbl.is Engin niðurstaða í London
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. mars 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband