2011-04-23
Varúð, lélegt blogg!
Ekki eru allir hrifnir af þessu bloggi.
Gunnlaugur Sigmundsson fyrrverandi þingmaður fordæmir það en hann segir:
Sæl Jakobína það er alveg makalaust að lesa bullið í þér. Þú segist vera að vinna doktorsritgerð við Háskóla Íslands en skrifar ítrekað bull og hreinar lygar á opinberum vettvangi, skrif sem oftar en ekki eru klár meiðyrði.
Nú svo er Einar Ólafsson ósáttur við heimildanotkun:
Jakbobína ætti að vita það eftir að hafa stundað háskólanám, en allir virtir háskólar, sem og kennarar, banna að nota wikipediu sem heimild.
Og ekki er Grétar sáttur við þekkingu mína og afstöðu til sjálfstæðisflokksins:
Hefur þú eitthvað fylgst með skólastarfi á Íslandi síðustu áratugi? Þessi lýsing þín á skólastarfi er eins fjarri sannleikanum og hugsast getur. Og frasinn með að sjálfstæðisflokkurinn hafi komið okkur í skítinn er orðinn þreyttur.
Já það er ömurlegt að vera lélegur bloggari.
![]() |
Á lúxusjeppa með stolin blóm |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (52)
2011-04-23
Hverjir eru hetjurnar?
Stjórnmálamenn vaða gjarnan fram á völlin og lýsa eigin ágæti og hetjudáðum sínum við "endurreisnina". þeir tala um batnandi efnahagshorfur á meðan í raun allt er í kalda koli.
Ég held að stjórnmálamönnum í forystu flokkanna sé alveg sama hvernig mannlífið er á Íslandi svo fremi sem þeir geti Þóknast alþjóðasamfélaginu og fjármagnseigendum. Að niðurstöðurnar í seðlabankanum skili réttum kennitölum.
Það er ömurlegt að sjá eftir fjölskyldumeðlimum úr landi. Að þurfa að skilja eftir hér á landi það sem fólk hefur byggt upp í lífshlaupinu. Fjölskylduna, vini, aðstöðu og menninguna sem það þekkir.
Yfirvöld og alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafa ekki tekið þennan þátt með í sínum útreikningum.
Skattgreiðendur halda stjórnmálamönnum og embættismönnum uppi á feitum launum og síðan eftirlaunum (sjálfteknum ofureftirlaunum).
Velferð skattgreiðenda virðist þó ávallt vera aukaatriði hjá stjórnmálastéttinni.
![]() |
Hætt við að færri komi aftur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
![]() |
Hafa aldrei vanefnt skyldur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2011-04-23
Athyglisvert...
![]() |
Selja All Saints á næstu dögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |