VG verður að virða félagshyggju, jöfnuð og umhverfi

Annars hefur flokkurinn ekkert fram að færa.

Ef VG markar ekki stöðu sína með launþegum, öryrkjum og almennri velferð þá gerir enginn flokkur það.

Samfylkingin hefur tekið sjálfstæðisflokk og framsókn til fyrirmyndar en forysta samfylkingarinnar hugsar fyrst um eigin hag og starfsframa.

Forysta samfylkingarinnar tók sjálfstæðisflokk og framsókn sér til fyrirmyndar og efldi tengsl sín við auðmenn og sótti þangað fjármagn til þess að efla völd Flokksins. Steingrímur virðist nokkurn veginn fylgja samfylkingunni nú í þessari áráttu og stefnir þjóðinni inn í ESB af þjónkun við Blairista samfylkingarinnar.

Íslendingar hafa ekki séð félagshyggju um langa hríð og innviðir samfélagsins eru að grotna niður vegna þess hvernig fjármunum hefur verið sóað af stjórnvöldum fyrst og fremst til þess að styrkja stoðir eigin flokka. 

Það er mál að linni.

Það verður að fara að tryggja framþróun og lýðræðislega stjórnarhætti. 


mbl.is Fast skotið á báða bóga hjá VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tek undir hvert orð hér hjá þér.

Í mínum huga hefur fall Samfylkingar - sem m.a. varð til við samruna  Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins (http://is.wikipedia.org/wiki/Samfylkingin) - verið mjög hátt og er það dapurlegt og valdið mér miklum vonbrigðum.  

Málið snýst nefninlega um "væntingar" kjósenda (m.ö.o. um væntingar viðskiptavinarins) og þar hefur "fylkingin" brugðist fullkomlega á síðustu árum. Viðvaranandi stuðningur Samfylkingarinnar við þekkta lands- og heimsþekkta óreiðumenn með öllu óþolandi. 

Það verða einhverjir að taka upp hanskann  fyrir almennum borgurum.

Ef ekki VG - þá mun einhver annar gera það.  Flóknara er það nú ekki.  

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 16.1.2010 kl. 19:07

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hvort þetta norræna velferðarsamfélag hrynur í beinni útsetningu fyrir eða eftir páska skipti kannski ekki máli. Það sem máli skiptir er að það er að hruni komið og af mjög eðlilegum orsökum. Því var aldrei ætlað að styðja við fólkið sem það átti að þjóna. Feministar fengu því ráðið að það kæmi allri heimsbyggðinni að notum og þó fyrst og fremst múslimum sem leituðu sér athvarfs til að byggja sig upp á kostnað athvarfsins með það markmið að tortíma stjórnsýslu þess og taka upp múslimska stjórnsýslu eftir sharialögum.

Ljóskurnar þráðu hið sterka karlasamfélag alskeggjað og umskorið. En hinar auðugu norrænu þjóðir reyndust ekki hafa þrótt til að gefa vandætnum múslimum að éta og eru nú í mesta basli með eigin heimsku. 

Steingrímur tók þá ákvörðun að veðja á þetta norræna velferðarkerfi en gengur það illa enn sem komið er.

Árni Gunnarsson, 16.1.2010 kl. 20:55

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ekki veit ég hvað það er sem Steingrímur kallar norrænt velferðakerfi. Í raun er mér alveg sama hvað það er kallað svo fremi sem misvitrir stjórnmálamenn rústa ekki framtíð barna minna og annarra. Það er ekki þeirra að borga og þessi frestunarárátta Steingríms er þjóðinni hættuleg. Það er núna sem á að taka slaginn en ekki að láta komandi kynslóðum hann eftir.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 16.1.2010 kl. 22:07

4 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Bylting er það eina sem getur bjargað þjóðinni frá fjórflokknum.

Kv, ari

Arinbjörn Kúld, 17.1.2010 kl. 08:12

5 Smámynd: Árni Gunnarsson

Sammála síðustu ræðumönnum. Steingrímur er búinn með reynslutímann og það fyrir þó nokkru. Mér sýnist hann vera að skrifa lokakaflann í stjórnmálasögu sinni.

Árni Gunnarsson, 17.1.2010 kl. 12:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband