Svavar Gestsson hefur aldrei gagnrýnt eigin verk að eigin sögn

Gefur einfaldlega ekki upp skoðun á eigin verkum eftir því sem hann tjáir mönnum á RUV.

Það er ekki furða þótt þessi einstaklingur sem er með stúdentspróf hafi ekki þurft að láta uppi skoðanir eigin verkum. Maður sem hefur ekki þurft að sækja um vinnu í áratugi heldur bara þegið bitlinga frá stjórnmálaflokkum.

Hrokagikkur fandans gubbar út úr sér kenningum sem hann rökstyður á engann hátt í útvarpi allra landsmanna. Hrokinn er yfirgengilegur og í góðri samsvörun við hroka Steingríms sem kallar erlenda sérfræðinga sem virtir eru á heimsmælikvarða snillinga.

Ég held að þessir stúdentar ættu að fara að hugsa sinn gang og horfast í augu við eigin vanmátt fremur en að rakka niður alvöru þekkingu.

Kerfi innstæðutrygginganna er einfaldlega þannig að það er tryggingarsjóðurinn sem er skuldbundinn.

Samkvæmt þessu kerfi er ekki heimilt að veita þessum sjóði ríkisábyrgð.

Þetta felst í Brussel viðmiðum sem Svavar Gestsson segist hafa farið eftir við gerð Icesavesamningsins.

Svavari Gestssyni finnst flott að hafa getað frestað greiðslubyrðinni í sjö ár en að þeim tíma liðnum verður hann og margir þeir sem aðhyllast þennan samning komnir á eftirlaun og aðrir teknir við.

Kostnaðinn af þessari frestun á að legga á komandi kynslóðir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Úbbs hélt að hann væri einungis gagnfræðingur, svo hann er þá stúdent eftir allt saman.  Breytir auðvitað öllu málinu...... Þessi maður ætti reyndar öðrum fremur að hafa vit á því að halda sér saman þessa dagana. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.2.2010 kl. 17:32

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Fyrsta pólitíska aftakan hefur farið fram, Útförin verður gerð síðar, Þeir sem vildu minnast hinna myrtu er bent á styrktarfélög blindra og heyrnarlausra

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 9.2.2010 kl. 17:54

3 identicon

Þvílíkur ælandi menntahroki sem vellur frá þér manneskja. 

Skólaganga ein og sér og prófgráður gerir ekki fólk að menntamönnum. 

Gef skít í allar þínar gráður. Þú ert algjörlega "ómenntuð" sjálf eins og sést á skrifum þínum.

Sá sem fyrirlítur aðra kallar sjálfur yfir sig fyrirlitningu annarra.  

Kjósandi (IP-tala skráð) 10.2.2010 kl. 00:20

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Sæll kjósandi

Sá sem gubbar svífyrðingum yfir aðra í skjóli nafnleynda er löðurmenni.

Ég sé ekki mikið athugavert við mennturnarleysi viðkomandi einstaklinga. það er hins vegar dómgreindaleysi þeirra sem er ámælisvert. Vel menntaður einstaklingur þekkir takmörk sín og það gerir þessi maður ekki. 

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 10.2.2010 kl. 16:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband