Fyrir hvern starfar Steingrímur Ari?

Það er mikilvægt að traust ríki á milli forstjóra stofnanna og þess ráðuneytis sem fer með málefni viðkomandi stofnunar. Það er hlutverk forstjórans að stuðla að því að viðkomandi stofnun vinni í þágu almennings og fylgi stefnu hins pólitíska valds.

Steingrímur Ari hefur brotið meginreglu stjórnsýsluskipulags með því að fara í stríð við ráðuneytið, pólitíska stefnu og almenning. Það er merkilegt að sumir bloggarar líta svo á að heilbrigðiráðherrann beri skyldur gagn var Steingrími Ara sem er innvígður í hin helgu vé sjálfstæðisflokksins. Álfheiður á heiður skilinn fyrir að nýta sér ákvæði um skyldur embættismanna til þess að tryggja velferð almennings.

Gott væri ef sjálfstæðismenn færu að skilja að þeir eru ekki við völd og ágætt væri ef ríkisstjórninni tækist að losa sig við embættismenn sem ekki starfa af trúnaði við almenning. 


mbl.is Vonar að málið fái farsælan endi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Halldórsson

Steingrímur Ari starfar nákvæmlega samkvæmt gildandi lögum á Íslandi, en EKKI samkvæmt tiktúrum ráðherra á egóflippi!

En það er líklega óhjákvæmilegt að ráðherrann eigi sér meðstalínista eins og þig.  Ég vona bara að ALDREI verði þörf fyrir þig við störf í stjórnsýslu á Íslandi!

Halldór Halldórsson, 3.4.2010 kl. 19:18

2 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Þarna er um að ræða réttlætismál, sem löngu var tímabært að leiðlrétta og ætti að vera hafið yfir alla flokkapólitík.

Sýnist svo Steingrímur Ari hafa farið einhvers konar fjallabaksleið -á bak við ráðherra- til að koma óánægju sinni með reglugerðina til skila.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 3.4.2010 kl. 20:56

3 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Steingrímur starfar fyrir okkur - almenning í landinu - og ber að gæta okkar hagsmuna - geri hann það ekki á að reka hann - það á ekki að áminna eða reka starfsmann fyrir það að gæta góðra stjórnsýsluhátta og ekki fyrir það að hafa það sem sannara reynist.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 4.4.2010 kl. 07:40

4 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

"Góðir stjórnsýsluhættir" eru ekki enn einn innantómur frasinn, sem menn eiga að slá um sig með án þess að hafa hugmynd um hvað í honum felst.

Hildur Helga Sigurðardóttir, 4.4.2010 kl. 08:04

5 identicon

Ef heilbrigðisráðherra er að leita leiða til að losna við frjálshyggjumanninn úr forstjórastólnum sem hann fékk að launum fyrir að vera hlýðinn og segja ekki frá því hvað gerðist í einkavæðingarnefndinni, þá er það góðs viti. Vonandi að ríkisstjórnin sleppi engu tækifæri til að losa þessa kúguðu þjóð undan valdi SjálfstæðisFLokksins, sem hefur eignað sér allt hér og eyðilagt.

Erla Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 4.4.2010 kl. 09:31

6 identicon

Ólafur Ingi Hrólfsson er rassasleikja #1 í Valhöll. Allur málflutningur hans er því marki brenndur.

Ný ráðin lektor við HÍ í stjórnsýslufræðum, kemur og dæmir án þess að hafa kynnt sér málið til hlítar. Sama manneskja sem komst upp með loðinn málflutning sem bitnaði á röngum aðila.

http://www.ruv.is/frett/god-astaeda-til-ad-aminna

Dögg Pálsdóttir tekur saman góðan pistil um málið sem ég álit að þið kynnið ykkur nánar.

 http://doggpals.blog.is/blog/doggpals/entry/1038164/

http://eyjan.is/blog/2010/04/05/logmadur-bref-alfheidar-til-steingrims-logleysa-oheimilt-ad-tilkynna-um-aminningu-adur-en-andmaeli-eru-sett-fram/

Fólk ætti að kynna sér málin.

Veffari (IP-tala skráð) 5.4.2010 kl. 13:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband