Predika framtíðarsýn en iðka skammsýni

Því var fleygt þegar AGS nam Ísland að sjóðurinn byrjaði nokkuð vægt en herti síðan sífelt ólina. Bætti t.d. í kröfurnar í hverri viljayfirlýsingu.

Þetta byggir á svipaðri strategíu og ef þú setur frosk í sjóðandi heitt vatn þá hoppar hann upp úr en ef þú setur hann í kalt vatn sem þú hitar smám saman þá mætir hann dauða sínum. 

Steingrímur Joð virðist hafa lært sitt hvað af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum þegar hann hvetur til þess að hugsa um eitt ár í einu en alls ekki um málið til enda.

Þetta er líka í góðu samræmi við skammsýni stjórnmálamannsins.

Stjórnmálamenn sem hafa setið tugi ára á Alþingi og talið í kjörtímabilum og hugsað í kjördæmapoti hafa ekki grun um merkingu hugtaksins framtíðarsýn. 


mbl.is Ekki svigrúm til launahækkana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Fáir virðast hafa nennt að lesa síðustu skýrslu AGS.

Sem dæmi, gerir hún ráð fyrir liðlega 2% samdrætti í neyslu árin - 2010, 2011, 2012, 2013 en aukningu 2014.

Einnig, fyrir sömu ár dregur úr innflutningi varnings og þjónustu.

----------------------

Eina leiðin til að þetta gangi upp, er að gera ráð fyrir samdrætti í lífskjörum fyrir þessi sömu ár, fyrir utan 2014.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 8.6.2010 kl. 16:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband