Því er auðsvarað

Það er ekkert mál að finna rök gegn Icesave.

Lögin eru í kjarna sínum óeðlileg

Lögin eru birtingarmynd siðferðisbrests í hinum vestræna heimi

Lögin eru afsprengi hrossakaupa og spillingar innan fjórflokksins

Lögin eru táknmynd dáðleysis stjórnmálamanna.

Ég fór í viðtal hjá Rakel í dag. Rakel og Siggi höfðu kallað til fólk með ólíkar stjórnmálaskoðanir sem ætlar að segja NEI við Icesave. Þetta var myndarlegur hópur fólks og Rakel og Siggi stóðu keik með hljóðnemann og kameruna. Þegar ég var að yfirgefa svæðið kom Bjarni Ben gangandi og gekk fram hjá hópnum enda virðist hann hafa litla sannfæringu aðra en að selja atkvæði sitt hæstbjóðanda.

Ég ákvað að leggja áherslu á það í viðtalinu að ég vil ekki vera þátttakandi í því að gera börnin mín að skuldaþrælum. Því hvað sem öllum rökum og hræðsluáróðri líður þá er það meginkjarni þessarar atkvæðagreiðslu.qynudohulnu5lj7cn8ldy4ipo1_500

 

Það er að fá foreldra til þess að samþykkja það að gera börn sín að skuldaþrælum til þess að borga skuldir Björgólfs Thors.

 

 

Björgólfsarmur Samfylkingarinnar vinnur hörðum höndum við að hræða foreldra til þess að vinna það voðaverk að selja börnin sín.

Myndin er af stofnenda Icesave reikninganna þar sem hann er staddur um borð í lystisnekkju.


mbl.is Kynna rök gegn Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Rökin gegn Icesave eru fjölmörg. Bretar knýja á samninga þar sem dómsstólaleiðin mun ekki henta þeim. Annars stæðu ekki samningar til boða. Hvað ætti almenningur að óttast? Við vitum að heimtur þrotabús gamla Landsbanka eru vafasamar. En ef Bretum ber eitthvað þá eru það eftirstandandi eignir þrotabúsins og ekki krónu meir.

Langar líka til að minna á hvað þessi ríkisstjórn er búin að gera marga góða hluti fyrir þjóðina okkar....... eða nákvæmlega ekki neitt. Er þessi samningur eitthvað öðruvísi? Nei - auðvitað ekki.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 11.3.2011 kl. 18:51

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Hann er hæglega nokkurra metra langur listinn yfir ástæður fyrir að greiða ekki atkvæði með þessum lögum. Það eru bæði blákaldar staðreyndir og tilfinningarök.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 11.3.2011 kl. 18:58

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Samála ykkur við getum ekki látið troða þessu inn á okkur með þeim aðferðum sem notaðar eru hjá stjórnarmafíunni!

Sigurður Haraldsson, 11.3.2011 kl. 19:08

4 identicon

ég er með ykkur

gisli (IP-tala skráð) 11.3.2011 kl. 20:09

5 Smámynd: Birgir Rúnar Sæmundsson

Ástæðan fyrir samningsvilja pólitíkusanna er einföld.

Böggarnir hafa mútað stóðinu, og Bretar vita allt um hvert peningarnir fóru,

(peningarnir af Icesave sem Darling talaði um að væru ekki til staðar inn á Icesave)

Ég tel næsta víst að Íslenskir, Hollenskir og breskir pólitíkusar hafi fengið feitann skerf úr Iceasve Þjófnaðinum, og þess vegna reyna þeir allt sem þeir geta að klína þessu á þjóðina svo að málið fari ekki fyrir dómstóla !

Því að þá kæmist allur þjófnaðurinn og svindlið upp, og Íslenska Stjórnmála Elítan verður að segja af sér með sama því að hún væri berskjölduð.

Það er að segja ef hún verður ekki hundelt í blóðugri byltingu !

Birgir Rúnar Sæmundsson, 11.3.2011 kl. 21:04

6 identicon

Steingrímur, Jóhanna og Darling vita nákvæmlega hvert Icesafe peningarnir fóru.

Það er lágmarkskrafa og lágmarks kurteisi að upplýsa þjóðina fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um það. Fyrst þeim finnst sjálfsagt að við borgum.

Ef það er ekki hægt hangir eitthvað rotið á spítunni. Og á meðan alt er enn í felum með Icesafe væri heimska að segja já.

Það hefur lygasaga ríkisstjórnarinnar í málinu kennt mér.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 12.3.2011 kl. 13:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband