Lítil reisn yfir Ástu Ragnheiði

Valdnýðsla forseta Alþingis var athyglisverð í þinginu í dag. Forseti Alþingis niðurlægið þingið með athöfnum sínum.

Tilefnið: Henni virtist ekki vera að skapi að Ólína Þorvarðardóttir bæri af sér sakir eins af leppum LÍÚ á þinginu.

Þetta vekur óneitanlega spurningar um það hvort Ástu Ragnheiði sé hlýtt til LÍÚ svona rétt eins og Vilhjálmi Egilssyni. 


mbl.is Hluti kvótans í byggða- og leigupotta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það var ömurlegt að horfa á þetta. Svona er farið með fólk á alþingi sem vill breyta einhverju, gamla svika-liðið stendur alltaf í vegi fyrir öllum góðum verkum sem skipta þjóðina verulegu máli. Og Bjarni Ben. var greinilega mjög ánægður með Ástu Ragnheiði. Þvílík hræsni! Hann virðist vera að stika sér leið til valdsins á hliðarvegi fram hjá lögum og kosningum, og er það ekkert nýtt hjá S-flokknum á alþingi.

 M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 15.4.2011 kl. 22:05

2 identicon

    Ekki Ólinu heldur  ..... frekja beggja  .... !!

Ransý (IP-tala skráð) 15.4.2011 kl. 23:24

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég stend með Ólínu. Hún er einn af fáum þingmönnum sem hafa sýnt einhvern dug.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 16.4.2011 kl. 01:01

4 Smámynd: Viðar Friðgeirsson

Algjörlega ósammála. Ólína þessi er óskammfeilin frekja og kallaði þetta yfir sig sjálf.

Hún reyndi að teygja lopann og þingforseti veitti henni þá hirtingu sem hun átti skilið. Ákveðin þingforseti sem lætur ekki frekjuþingmenn komast upp með neitt múður alveg sama þó það séu hennar eigin flokksmenn.

Ber virðingu fyrir svona vinnubrögðum og þau voru ekki gerð fyrir BB og hafa ekkert með skoðun þingforseta á LÍÚ að gera. Að ásaka Ástu Ragnheiði um að vera í einhverju gömlu svikaliði út af þessu er út í hött hvað sem um hana má segja að öðru leyti. Eruð þið kannski að ýja að því að hún sé á mála hjá XD eða kanski LÍÚ? Bjánalegt. Ragnheiður Ásta er góður og gegn Samfylkingarsinni sem neyddist til að hirta sinn eigin samflokksmann og gerði það vel, punktur.

Vil taka það fram að ég finn sjaldan hjá mér þörf til að verja eða hæla Samfó-fólki en nú get ég ekki orða bundist að svara ykkur og verja Ástu Ragnheiði.

Og Jakobína. Rökstyðja þessa fullyrðingu, takk. Ég meina þá fullyrðingu að hún sé einn af fáum þingmönnum sem sýnt hafi dug. Mér finnst nefnilega allt sem frá henni hefur komið vera dæmalaust rugl og nú síðast 100% skatt á alla sem hafa yfir 1 milljón í tekjur. Glæsilegt það eða hitt þó heldur. Hún gleymdi því alveg að það er fullt af fólki hér sem vinnur hörðum höndum að því að bjarga þessu þjóðarbúi og hefur með dugnaði sínum meira en miljón á mánuði og á það alveg skilið. Það eru fleiri en bankasjórar á slíkum launum. hún má þessvegna setja skorður á þá og þá sérstaklega í þeim bönkum sem hún ræður yfir en að ætla að setja alla á þann bás er einfaldlega heimskulegt og drepur niður allt einstaklingsframtak, en það er kannski einmitt það sem hún vill. Amen.

Viðar Friðgeirsson, 16.4.2011 kl. 04:05

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ólína Þorvarðardóttir hefur frá því að hún settist á þing tekið afstöðu til mála út frá velferð almennings. Hún hefur látið sér annt um málefni eins og lýðræði, kvótakerfið, eiturefni í náttúrinni og misskiptingu auðs.

Ásta Ragnheiður hefur hins vegar ekki sýnt nokkurn dug annan en að þyggja ótæpilega bitlinga enda skilst mér að það standi henni nærri.

Það segir sitt að þú getur ekki komið með önnur rök en að Ólína sé frekja og svo ertu með rangfærslur um hennar sjónarmið.

Þeir sem hafa milljónir á mánuði eru flestir því marki brenndir að þeir tóku virkann þátt í því að setja landið á hausinn. Þú ert greinilega málssvari útrásarliðsins og LÍÚ.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 16.4.2011 kl. 12:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband