Versnar skólinn eitthvað við þetta?

Nú ryðjast menn fram á völlinn og tala um nýðingsverk. En nýðingsverk hafa verið daglegt brauð á Íslandi. Það var nýðingsverk þegar að sjálfstæðisflokkurinn setti þjóðarbúið á hausinn. það var nýðingsverk þegar að sjálfstæðisflokkurinn hélt grunnskólum í svelti fram að því að hann var fluttur til sveitarfélaganna.as1078kdsmusm38.jpg

Íslenski barnaskólinn var mótaður að fyrirmynd kirkjunnar um aldamótin 1900. Kennarinn var presturinn, börnin voru söfnuðurinn og kennslubókin var biblían. Verkefni barnanna var linnulaus utanbókarlærdómur. Það var svo sem ekkert að því á þeim tíma. En það var hinsvegar ámælisvert að skólinn skildi enn vera rekinn í því formi fram til loka aldarinnar. 

Hvers vegna eru íslenskir grunnskólar slíkt miðaldafyrirbæri. Það er ekki vegna þess að þeir hafa verið sameinaðir svona mikið. Nei það er vegna þess að skólunum var markvisst haldið niðri af stjórnmálamönnum. Litlar kröfur hafa verið gerðar til kennara og þeir illa launaðir. Um það hefur ríkt þegjandi samkomulag.

Og hvar hafa foreldrarnir verið? Ekki voru þeir að hrópa nýðingsverk. Ekki voru þeir að gera kröfur um bætta menntun til handa börnum sínum. Nei foreldrarnir skutluðu bara börnunum sínum í skólann og snéru sér svo að öðru.cbr003284.jpg

Ég segi við kennara og foreldra. Kennarar ef þið viljið betri skóla gerið þá foreldra þátttakendur í skólastarfinu. Foreldrar hættið að líta á skólana sem geymsluhúsnæði og gerist virk í skólastarfi barna ykkar. 

Og ef þið viljið tala um nýðingsverk talið þá um nýðingsverk sjálfstæðisflokksins sem tæmdi sjóði landsins og skuldsetti það upp í rjáfur. 


mbl.is „Stjórnsýslulegt níðingsverk“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbjörn Árnason

þessir foreldrar eru að biðja um barnagæslu

Kristbjörn Árnason, 20.4.2011 kl. 07:57

2 identicon

Svarið við fyrirsögn þinni er Já!

Reykjavíkurborg sameinaði t.d. tvo leikskóla síðastliðið ár á sambærilegan hátt og nú er gert. Leikskólastjóri nýs sameinaðs leikskóla hefur sjálfur skrifað í blöðin um hversu illa ígrunduð þessi breyting hafi verið og hvernig hafi tekist til. Nú verður annar hver leikskóli borgarinnar "hauslaus her". Það sér það hver viti borin manneskja að þetta mun ekki ganga upp!

Kristinn (IP-tala skráð) 20.4.2011 kl. 08:33

3 identicon

Hefur þú eitthvað fylgst með skólastarfi á Íslandi síðustu áratugi? Þessi lýsing þín á skólastarfi er eins fjarri sannleikanum og hugsast getur. Og frasinn með að sjálfstæðisflokkurinn hafi komið okkur í skítinn er orðinn þreyttur. Við erum þar enn og það hefur enginn getu til að ná okkur upp - ja nema kannski sjálfstæðisflokkurinn

Grétar (IP-tala skráð) 20.4.2011 kl. 08:37

4 Smámynd: halkatla

Sjálfstæðisflokkurinn að hugsa um hag barna, aldraðra, óflokksbundinna.... HAHAHA, þvílíkur brandari Grétar! En í sambandi við skólastarfið, þá var það nú bara ágætt þegar ég var að alast upp, að mínu mati miklu betra en í dag. Grunnskólinn á að sjá um að fræða, ekki passa eða að leika við börn sem kunna ekki stafsetningu né málfræði.

halkatla, 20.4.2011 kl. 09:52

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Skólinn á fyrst og fremst að vera góður staður fyrir börn og virða forsendur barna. Kristinn það væri skrítið ef stjórnendur myndi ekki vera neikvæðir gagnvart þessum hugmyndum sem bitna harkalega á þeim sjálfum. Grétar sjálfstæðisflokkurinn gert skammarlega hluti í skólamálum undanfarna áratugi.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 20.4.2011 kl. 12:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband