Forheimskandi kjaftæði á borð við þetta nær hjarta hins þrælslundaða fylgjanda.

Styrmir tekur einn miða sem merktur er VINSTRI og hengir á alla flokka aðra en sjálfstæðisflokkin og kallar þá svo sundraða. Þetta eru ein af verri forheimskunarskrifum sem ég hef séð og karlinum til lítils sóma. Í pistlinum reynir Styrmir ekki á nokkurn hátt að útskýra hvað hann á við með VINSTRI. Hann reynir heldur ekki að útskýra hvaða forsendur hann hefur fyrir því að kalla þessa flokka til VINSTRI.

Algeng skilgreining á VINSTRI er að VINSTRIhugsjónin feli í sér vilja til breytinga. Vilji lýðræðisþróun ekki bara á sviði efnahags heldur einnig félagslegar og réttafarslegar framfarir.

HÆGRI er gjarnan skilgreint sem vilja til þess að viðhalda gömlu kerfi og menningargildum þar sem almúgurinn bugtar sig og beygir fyrir hreppstjórnanum og prestinum. 

Kannanir hafa sýnt að 90% íslendinga aðhyllast jöfnuð en sjálfstæðisflokkurinn notaði skattkerfið til þess að auka ójörfnuð á valdatíð sinni. Rannsóknir Stefáns Ólafssonar hafa sýnt að aukning í svokölluðum 90/10 mismuni var 16.1% fyrir skatta en 39,4% eftir skatta. Skattkerfið var notað til þess að auka mismunun ráðstöfunartekna. Auk þess sem skattpíning á millistéttar og láglaunafólki var stefna sjálfstæðiflokksins var skerðing á atvinnufrelsi, höft og einokun ofarlega á dagskrá flokksins. 

Hvernig komst sjálfstæðisflokkurinn upp með að vega svona að almenningi, ekki bara að vinstrix13862413.jpg sinnuðum almenningi heldur einnig sínum fylgjendum. Jú með því að búa til áróðurstæki á við þau sem Styrmir framleiðir í þessum pistli. Forheimskandi kjaftæði á borð við það sem Styrmir býður upp á nær hjarta hins þrælslundaða fylgjanda. 

Auk sjálfstæðisflokksins eru sex flokkar. Með tilliti til VINSTRI/HÆGRI er afstaða þessara flokka mismunandi. Sjálfstæðisflokkurinn er hluti sundrungar á pólitíska sviðinu og er alls ekki eini valkosturinn við VINSTRI. Hver og einn flokkanna hefur eitthvað til að bera sem aðgreinir hann frá öðrum flokkum en það sem aðgreinir helst sjálfstæðisflokkin eru svik hans við almenning, þjónkun hans við auðræðið og atlögur hans gegn lýðræðinu.  


mbl.is Sjö kvíslir vinstrimanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Styrmir talar um sjö kvíslir vinstri flokka og flokksbrota, og það er engin ástæða til að tala hér um "forheimskandi kjaftæði". Þar að auki er rangt hjá þér, Jakobína, að segja hann hengja vinstrimennskuna "á alla flokka aðra en Sjálfstæðisflokkinn," því að hann talar þar ekki um Framsóknarflokkinn (það gerði hins vegar sá, sem skrifaði fréttina á Mbl.is, hafði vinstri arminn þar sem 9. kvíslina, en bjó til tvær kvíslar úr Samfylkingunni, þannig að Árna Páls-liðið er 8. kvíslin). Þar að auki eru t.d. Hægri grænir ekki vinstri flokkur ... og lofa ekki aðeins þess vegna góðu, enda eru þeir með ötulan, vinnufúsan, reyndan, vel upplýstan og hugmyndaríkan mann í formennsku: Guðmund Franklín Jónsson.

En um vinstrimennskuna mætti segja, með drjúgri breytingu á gömlu orðtæki:

Errores non sunt multiplicanda.

Jón Valur Jensson, 18.4.2012 kl. 00:42

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hér vil ég reyndar lagfæra síðustu orð mín, því að eðlilegt og réttsýnt er að menn hafi samúð með fátækum og með réttlítilli alþýðu, en slíkar áherzlur tilheyra ýmissi vinstrimennsku, en gleymast gjarnan í dogmatískum valdboðs-sósíalisma, sem á sér víðast hvar ófargra sögu. Því skrifa ég nú:

En um sósíalismann mætti segja, með drjúgri breytingu á gömlu orðtæki:

Errores non sunt multiplicanda.

Jón Valur Jensson, 18.4.2012 kl. 01:09

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Samstaða sjálfstæðisflokksins felst aðallega í baktjaldamakki þegar herja á á almenning. Menn í forystunni hylma hver yfir öðrum og mútuþægð hvers annars.

Ekkert við þennan flokk sem kallar á aðdáun mína

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 18.4.2012 kl. 23:35

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég var alls ekki að mæla með Sjálfstæðisflokknum, Jakobína Ingunn!

Jón Valur Jensson, 19.4.2012 kl. 04:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband