Flugeldasýning Þóru

Í pistli sem birtur var fyrir nokkru á Smugunni er bent á að þekkingin að baki framboði Þóru virðist fyrst og fremst vera þekking sem nýtist við að setja upp flottar flugeldasýningar en að það sé átakanlegt hversu lítið fer fyrir þekkingu sem myndi nýtast í forsetaembættinu. Holur hljómur er í notkun hugtaka en helstu kosningaloforðin ganga út á að sitja kaffisamsæti með ríkisstjórnum.k5774245.jpg

Framboði Þóru sem hún annað hvort hannar sjálf eða kaupir einhvern úr auglýsingabransa til þess að hanna skortir sérstöðu og sannfæringu. 

Þóra segist stolt af því að vera Íslendingur en ég á bágt með að trúa að aðrir frambjóðendur standi henni að baki í þeim efnum. Hún telur að forsetinn eigi að vera forseti allrar þjóðarinnar sem er auðvitað bara frasi enda gera lög ráð fyrir því forsetinn sé forseti allrar þjóðarinnar. Hún telur það einnig sér til kosta að vera kona, móðir og maki en þetta á við um marga frambjóðendur og skapar henni ekki sérstöðu. Þóru gengur illa að svara spurningunni hvers vegna mig frekar en hina. 

Heldur myndi ég vilja setja rakettu undir Herdísi og þeyta henni inn í forsetaembættið á hugsjónum hennar um mannréttindi og lýðræði.

Ég óttast að Íslandið sem Þóra vill sjá sé hundleiðinlegt. Það er hundleiðinlegt að þora ekki að segja hug sinn og það er hundleiðinlegt að þurfa að gera öllum við borðið til geðs af ótta við að vera misskilinn vitlaust. Þóra boðar leiðinlega Ísland þar sem allar stelpurnar eru þægar og góðar. Þegar gagnrýnisraddir þagna og þægðin verður viðvarandi í litlausri flatneskju leiðinda fer lýðræðið forgörðum í umræðu sem engan má trufla.

Þegar umræðan er gangrýnin og beitt hreyfir eitthvað við sálu okkar og við finnum fyrir innri breytingum sem hrífa okkur með straumum sem stefna í átt að auknum mannréttindum og lýðræði. 

 


mbl.is „Við sameinumst um Þóru“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ingunn í þessu máli er ég sammála þér.  Þetta er flugeldasýning og ekkert fram yfir það.  Synd hvað fólk getur verið glámskyggnt á annað fólk og sjá ekki í gegnum þetta innantóma framboð. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.6.2012 kl. 22:06

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Takk fyrir það Ásthildur

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 21.6.2012 kl. 22:13

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Segi og meina það Jakobína mín svo sannarlega.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.6.2012 kl. 22:18

4 Smámynd: Theódór Gunnarsson

Já, þetta er dálítið eins og ég upplifi Þóru. Hún er fyrirmyndarmanneskja og myndi líkast til alveg valda embættinu, en ég fæ ómögulega séð að hún taki sumum frambjóðuendunum fram. Ég skil einfaldlega ekki fylgi hennar. Mér finnst Herdís t.d. frambærilegri forsetaframbjóðandi og Andrea einnig. Ég efast samt ekki um að Þóra gæti orðið álíka notaleg og móðurleg og Vigdís var, en það er ekki það sem mér finnst vanta núna.

Theódór Gunnarsson, 22.6.2012 kl. 00:12

5 identicon

Já ég er nokkuð sammála þessum pistli og athugasemdunum að ofan þó Þóra sé eflaust mjög góð manneskja og gæti eflaust orðið hinn fínasti forseti. En þegar henni gengur svona illa að svara spurningum um sín embættisverk ef hún yrði kosin í viðtölum og þegar farið er að auglýsa Þóru-boli, Þóru-dag og Þóru-andlitsmálningu þá fer maður að velta fyrir sér hvort þetta sé eitthvað mikið meira en bara flugeldasýning.  Kannski too much..

Skúli (IP-tala skráð) 22.6.2012 kl. 10:29

6 identicon

ég ætla að kjósa Herdísi, sem forseta, því ég treysti hanni best til að vera gæslumaður þess að mannréttindi og fjölbreyttar skoðanir, séu virt á íslandi. Ef þið viljið heiðarleika og ábyrgð, ásamt mannréttindum, þá er Herdís besti kosturinn.

óli (IP-tala skráð) 22.6.2012 kl. 10:32

7 identicon

Leiði hugann að því, ef Þóra kemst ekki að Bessastöðum og snýr til baka til fyrri starfa, verður hún jafnvinsæl og fyrr ???

Jóhanna (IP-tala skráð) 22.6.2012 kl. 11:06

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég hef þegar kosið Ólaf,allir nema Ari Trausti eru frambærilegir,en búa ekki yfir því sem ég óska að sjá í forseta.

Helga Kristjánsdóttir, 24.6.2012 kl. 01:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband