Samsæri IMF

Kem þessu á framfæri

 Ég hvet fólk til að lesa Jóhannes Björn á vald.org.

Hann ýjar að því að samsæri sé í gangi gagnvart íslendingum.

"Það er fnykur í lofti og hann virðist koma beint frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. IMF elskar okurvexti og gjaldeyrisbrask. Fljótandi gjaldmiðlar henta fjöljóðafyrirtækjum og stórbönkum mjög vel. Því ekki að keyra niður krónuna og fjárfesta í ódýrri orku? Okurvextir hjálpa þessum húsbændum IMF vegna þess að þeir lama hagkerfi Íslands og landið verður loks að sækja meira fé til bankans – og þá verður þumalskrúfan enn hert."

Vaxtahækkunin, sem þegar er búið að framkvæma, er eins og rothögg fyrir atvinnulífið.

Krónan mun hrynja samt.

Við verðum sokkin enn dýpra í skuldirnar.

Í kjölfarið verðum við auðveld bráð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Heitir þetta að marinera kjötið? Eða þreyta laxinn? Eða leika sér að músinni? Eða egna gildruna? Eða læðast að bráðinni? Eða??????

Vilborg Traustadóttir, 9.11.2008 kl. 23:58

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Eitthvað heitir það!

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 10.11.2008 kl. 00:00

3 Smámynd: Thee

Gott er að sjá að alltaf eru fleiri og fleiri að átta sig á Alþjóða Gjaldþrotasjóðnum. Er hugsanlegt að t.d. USA sé að svala þorsta sínum í framtíðinni.

Thee, 10.11.2008 kl. 00:01

4 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Það má alveg hugsa um þetta.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 10.11.2008 kl. 00:11

5 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

óhuggulegt. Ég var einmitt svo hlidholl imf, var einmitt ansi hrædd vid ad rússarnir myndu gera thetta. og hver veit?

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 10.11.2008 kl. 00:38

6 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Puff, ekki gott. En trúi orðið öllu sem kemur ekki frá Alþingi.

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 10.11.2008 kl. 01:40

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ég sannfærist nú ekki um þetta..........en ef það er rétt að við getum skipt yfir í evru 1 2 og 3 eins og Silfur-Hagfræðingarnir töluðu um er það þá ekki málið?

Hólmdís Hjartardóttir, 10.11.2008 kl. 01:52

8 identicon

Við sjáum hvernig IMF er notað af Bretum og öðrum þjóðum til að þvinga okkur.

Það er líklega vonlaust verk að endurvekja krónuna, því svo margir útlendingar eiga krónubréf og fara strax að selja þegar það verður hægt. Þá mun verð krónunnar falla enn meira.

Sveinn hinn Ungi (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 09:43

9 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já ég held að eina leiðin sé þessi með einhliða upptöku gjaldmiðils.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 10.11.2008 kl. 12:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband