Er verið að leita að hliðhollum og mútuþægum erlendum sérfræðingum?

Seinagangur við að hefja rannsókn á spillingu í bönkum, stofnunum og stjórnarráði vekur undrun almennings. Forsætisráðherra segir kokhraustur að hann muni hlíta niðurstöðum slíkra rannsókna. Hvað er að gerast bak við tjöldin núna? Er verið að leita að mútuþægum og hliðhollum erlendum og innlendum sérfræðingum til þess að fylla nefndir sem rannsaka eiga þá sem skipa í nefndirnar?

Ráðherrar voru ekki hrifnir af tillögu borgarafundar um að veita almenningi aðgang að þessum nefndum.

Ráðherrar virðast ekki átta sig á því að umræðan og samheldni almennings er að slá vopnin úr höndum þeirra. Þeir þræta fyrir að við séum þjóðin.

Við erum þjóðin og við látum ekki bjóða okkur bullið lengur. Það má uppnefna okkur, vanvirða okkur og brjóta á okkur en við beygjum okkur ekki. Reisnin er nefnilega okkar.

Við eigum heiðarleikann óflekkaðan.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rannveig H

Eigum við að klóna Agnesi? Sem getur líka tekið á Kaupþingi og Landsbanka.

Rannveig H, 26.11.2008 kl. 17:25

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

það mætti nú klóna einn og annann á þessum tímum

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 26.11.2008 kl. 17:29

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Þetta hefur einn þingmanna um mig að segja: "Ekki veit ég hver þú ert eða við hvað þú starfar en viðhorf þín gagnvart fólki almennt skelfa mig sem og fullvissa um eigið ágæti. Við hvað starfar þú með leyfi?"

Skil ekki hvað ég er að koma við kauninn á þessu fólki.

Ég er nú frekar barnaleg og hef ekki alltaf áttað mig á því að þessar blessuðu reglur sem ég hef verið að reyna að hlýta eiga bara við suma en ekki aðra.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 26.11.2008 kl. 17:39

4 Smámynd: Rannveig H

Og hvaða alþingismaður var þetta??

Rannveig H, 26.11.2008 kl. 17:53

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Hún situr fyrir sjálfstæðisflokk. En er það ekki árangur okkar þegar að þingmenn fara að roðna í vöngum.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 26.11.2008 kl. 17:55

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég virðist ekki eiga upp á pallborðið hjá sumum þingmönnum því annar lét sér detta í hug að ég væri bitur og vansæl. Vil ekki birta nafn vegna þess að hann bast síðar afsökunar.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 26.11.2008 kl. 17:58

7 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Hey, heyr Bíbi, hvað er að gerast á bak við tjöldin og hvers vegna tekur þetta svona langan tíma? Er verið að fela sljóðirnar?

Þetta er bara sagt um konur; bitrar og vansælar. Annað getur það ekki verið. Það heitir reiður "ungur" maður ef karl á í hlut.

Rut Sumarliðadóttir, 26.11.2008 kl. 18:12

8 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já Rut en við látum það í léttu rúmi liggja og höldum bara okkar striki.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 26.11.2008 kl. 18:23

9 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Slæm er samviska þeirra sem ráðast á bloggar vegna skoðana sinni.Ég er sammála þér að ef ekki verður staðið rétt að rannsókninni og ef haldið er áfram að tala niður til fólks þá endar þessi mótmæli með allsherjar uppþoti það hefur sloppið vegna þess að uppistaðan í mómælendum er fólk á miðjum aldri en ef ungdómurinn fer á stað sem mun gerast þá færast mótmælin á annað stig og mun hættulegra.

Ríkistjórnin verður að gera sér grein fyrir því og koma fram af heiðarleka og sanngirni og án hroka, það eru allir jafn réttháir í þessu landi okkar. 

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 26.11.2008 kl. 18:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband