Hvers vegna þorir ríkisstjórnin ekki?

Sturla Böðvarsson forseti alþingis sagði í gær að nefnd til að rannsaka orsakir og aðdraganda bankahrunsins yrði skipuð fyrir jól. Ég skrifaði pistil um rannsóknanefndina sem hefur verið birt á Smugunni og bendi áhugasömum á að lesa hana.

"Hvers vegna þorir ríkisstjórnin ekki að kveða til óháða og samfélagsgagnrýna aðila innan þekkingarsamfélagsins til þess að stýra þessari rannsókn?"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Okkur grunar nú hvers vegna!

Hólmdís Hjartardóttir, 20.12.2008 kl. 01:25

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Það þarf að stýra rannsókninni. Eins og fréttaflutningi og öðru í þessu landi. Það eru allir meira eða minna hræddir um eigið skinn vegna þess að svo margir urðu græðgisvæðingunni að bráð. Sem sagt gráðugt fólk þorir ekki að taka afleiðingum eigin græðgi!

Vilborg Traustadóttir, 20.12.2008 kl. 01:29

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Lára Ómarsdóttir er búið að senda inn umsókn......mæli eindregið með henni í nefndina

Sigrún Jónsdóttir, 20.12.2008 kl. 11:08

4 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Ég þakka þér góða grein á Smugunni Gott að rödd þín er farin að heyrast víðar! Mér finnst reyndar undarlegast að þeir skuli ætla að skipa sjálfa sig til að rannsaka gjörðir vina sinna ættingja og síðast en ekki síst sínar eigin. Þetta lyktar þess vegna ekki eins og rannsókn sem á að leiða eitthvað í ljós eins og þú hefur bent á. Hún er til þess ætluð að sýnast. Þeir geta sagt að það hafi vissulega farið fram rannsókn!! En það hlýtur að vera eins og með Baugsmálið það þýðir ekki að það megi ekki rannsaka málið aftur og aftur en þá með nýrri rannsóknarnefnd!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 20.12.2008 kl. 11:12

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Það er meira en mánuður síðan ég bauð Geir að rannsaka hann en hef ekki heyrt frá honum enn. Þetta var kostaboð því ég bauðst til þess að gera það ókeypis.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 20.12.2008 kl. 14:09

6 Smámynd: Diesel

Jakobína, mig vantar hjá þér e-mail addressuna :)

Diesel, 20.12.2008 kl. 16:55

7 identicon

Jakobína, greinin í Smugunni er snilld og ég bendi á að þú ættir að lesa hana á Borgarafundinum sem verður þann 12. janúar.

Lilja Skaftadottir (IP-tala skráð) 20.12.2008 kl. 19:49

8 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Þú ert sannkallaður skörungur Jakobína!! Þar sem það eru að koma jól ætla ég ekki að setja það niður á blað núna hvað mér finnst um Geir

Rakel Sigurgeirsdóttir, 20.12.2008 kl. 19:57

9 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég þakka góðar umsagnir. Já það eru víst að koma jól og ég er byrjuð að stússast í kringum það. Fer að baka piparkökur með krökkunum og annað sem dreifir huganum. Ég á ekki von á að ástandið breytist meðan við erum að halda jólin svo verkefnin bíða okkar eftir jólin

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 20.12.2008 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband