Blóðug morð

Ísraelar fremja blóðug morð á Gasaströndinni og er engum eirt. Ísraelar eru að hefna sín með því að drepa, sprengja upp börn, konur, menn, venjulegt fólk sem er að reyna að lifa venjulegu lífi við skelfilegar aðstæður. Þeir eru að hefna þess að Hamas hafa skemmt grjót og torf með flugskeytum sem er náttúrulega ólíðandi! Menn safnast saman til mótmæla á Norðurlöndum en eitthvað virðist Ísraelum fipast við talningu mótmælenda ekki ósvipað yfirvöldum á Íslandi en í frétt mbl segir: 

Stokkhólmi sögðu skipuleggjendur að um 1000 manns hefðu gengið frá einu aðaltorgi borgarinnar að sendiráði Ísraela en lögregla taldi þá vera um 500 talsins. Mótmælendurnir, sem flestir voru múslimskir innflytjendur í Svíþjóð, ef marka má fréttaskeyti AFP fréttastofunnar, hrópuðu slagorð og kveiktu í ísraelska fánanum. Mótmælunum lauk á friðsömum nótum nokkrum tímum eftir að þau hófust, en víðar var mótmælt í Svíþjóð í dag.


mbl.is Mótmæli á Norðurlöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband