Enn reynir Geir að blekkja þjóðina

það var svart kastljós kvöldsins. Framundan eru miklir erfiðleikar og ríkisstjórnin er EKKI með nothæft aðgerðaplan til þess að takast á við erfiðleikanna.

Fjármálaráðherra sver enn af sér alla sök. Í miðri hringiðunni eru öfl af verki sem ætla að auka enn á ójöfnuð með árás á heilbrigðiskerfi og velferð almennings.

Við getum ekki treyst ríkisstjórninni. Við verðum að taka málin í okkar hendur.

Fyrsta skref í átt að betri framtíð er lýðræði fyrir okkur. Við verðum að taka að okkur að reisa lýðræði á Íslandi því framtíðin er okkar


mbl.is Kreppan getur dýpkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Er ekki örugglega einhver gerjun í gangi v. lýðveldisbyltingar?

Sigrún Jónsdóttir, 13.1.2009 kl. 22:18

2 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Jú það er allt á fullu. Ég má varla vera að því að blogga og ætla að fara snemma að sofa.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 13.1.2009 kl. 22:25

3 identicon

Ég var að renna yfir þessa grein og er ansi hreint hissa eftir þann lestur.

Helga (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 22:37

4 Smámynd: Jón Ólafur Vilhjálmsson

Það er nokkuð ljóst að hver og ein fjölskylda verður að standa saman þeir sem betur mega sín verða að hjálpa hinum sem hægt er að hjálpa peninga lega og sé það ekki hægt verður fólk að flytja hvert inn á annað og búa þröngt.

Við skulum ekki reikna með að fríkstjórnin geri neitt í málunum hún sefur og seigir fólki að þegja þannig að þaðan er enga hjálp að hafa því iður

Jón Ólafur Vilhjálmsson, 13.1.2009 kl. 23:09

5 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Gott að heyr að allt er á fulli í þessum málum.

Vilborg Traustadóttir, 13.1.2009 kl. 23:29

6 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Hann leggur sig svo fram í blekkingarleiknum að það er hreinlega pínlegt. Það er svo pínlegt að hann getur sjálfur ekki varist því að glotta. Glott hans virkar reyndar svo illa á mig að mig verkjar undan því líka!

Rakel Sigurgeirsdóttir, 14.1.2009 kl. 01:04

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Greinin sem Helga vísar til er ótrúleg. En ég heyri fullt af fólki gagnrýna mótmælin og kalla okkur vitleysinga

Hólmdís Hjartardóttir, 14.1.2009 kl. 10:58

8 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Jokobína.

Á laugardaginn var sagði Andrés Magnússon að ekkert væri gert til að takast á við þann vanda sem atvinnulífið væri að glíma við.  Reyndar minntist hann á eina undantekningu og það var vaxtastigið, sérstök aðgerð til að auka vandann.

Þorsteinn Víglundsson skrifar grein í Morgunblaðið í gær það sem hann segir að ekkert sé aðhafst að hálfu stjórnvalda til að koma í veg fyrir yfirvofandi hrun atvinnuveganna.

Þetta eru tveir talsmenn atvinnulífsins, innmúraðir sjáfstæðismenn og þeir segja á mannamáli að atvinnulífið sé að hrynja og ríkisstjórn okkar sé algjörlega vanhæf.  Maður hefði haldið að fjölmiðlarnir hefðu ekki unnt sér hvíldar fyrr en ráðamenn okkar hefðu verið látnir standa fyrir máli sínu í kjölfar ítarlegrar frettaskýringar um núverandi ástand og það sem koma mun á næstu vikum ef fullyrðingar þessa manna séu réttar.  Nei, ekkert var minnst á þetta.  Önnur mál þóttu vera meira aðkallandi en hvort stór hluti þjóðarinnar yrði atvinnulaus.  Og ríkissjóður gjaldþrota í kjölfarið.

Þá kom Breti, einn af virtustu hagfræðingum heims og hann sagði að hörmungar væru framundan.  Þá rumskaði fjölmiðlafólk aðeins og þetta var þriðja eða fjórða frétt og hann Geir okkar var látinn svara.  Og hvert var svar hans?  Jú við erum að gera mikið,  hafið þið ekki heyrt af fjárfestingasamninginum við Norðurál?.  

Á maður að hlæja eða gráta?  Einhver samningur um eitthvað sem hugsanlega gæti gerst einhvern tímann í hugsanlegri framtíð, Það er efnahagsráðstafanir ríkisstjórnar Íslands til lausnar yfirvofandi stöðvnun atvinnulífsins.  Firringin sem kemur fram í þessu svari Geirs er algjör en heilabúið á fjölmiðlafólki okkar sem lætur málið þar með vera útrætt!!!!!    Guð hjálpi því og varðveiti.  

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 14.1.2009 kl. 11:54

9 identicon

Takk fyrir Silfrið.  Frétti að þú hefðir verið best og með ferska sýn á hlutina. 

María Sigrún (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 15:02

10 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Takk fyrir innlitin. Við stöndum bara saman og breytum þessu.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 14.1.2009 kl. 18:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband