Hunsa orð kreppuprófessorsins

 Þetta sagði Prófessor Aliber í maí á síðasta ári:

Endurskipulagning (bankanna) væri óhjákvæmileg enda væru íslensku bankarnir ekki bankar lengur í hefðbundnum skilningi þess orðs heldur sjóðir. Bankarnir þyrftu að renna saman og síðan þyrfti að skipta þeim í tvennt, í A-banka sem væru hefðbundnir viðskiptabankar og B-banka sem væru sjóðir og sæju um fjárfestingar og slík viðskipti.

Robert Aliber, prófessor emeritus í alþjóðahagfræði og fjármálum við Viðskiptaháskólann í Chicago, er svartsýnn á stöðu efnahagsmála á Íslandi.

Aliber segir að:  Það ber enginn traust til núverandi ríkisstjórnar og seðlabanka; það treystir þeim enginn til þess að grípa til þeirra ráðstafana sem nauðsynlegar eru til þess að unnt verði að endurgreiða slík lán.

I grein Morgunblaðinu er haft eftir Robert Z. Aliber að fólk sem valið væri af handahófi úr símaskránni gæti varla klúðrað efnahagsmálum hér meira en Seðlabanki og stjórnvöld hafa gert.

Nú ætla hluti þeirra einstaklinga sem hlupu um lönd og mærðu framtak íslenskra auðmanna að bjarga þjóðinni í kreppu.

Prófessor Aliber í nóvember 2008

Lífið myndi ganga sinn vanagang

„Ef landið fengi ekki lánið þá myndi lífið ganga sinn vanagang en krónan myndi verða enn ódýrari gagnvart evru og bandaríkjadollar. Það myndi örva útflutning enn frekar en innflutningur myndi dragast saman með sama móti, vegna ódýrrar krónu. Færri Íslendingar myndu ferðast til útlanda en fleiri ferðamenn kæmu hingað í staðinn, með tilheyrandi tekjum. Ef Íslendingar fengju lán þá fælist áhættan fyrst og fremst í því að þeir sjóðir sem IMF myndi gera tiltæka með þátttöku annarra ríkja, gætu haft í för með sér að ríkið héldi áfram að reyna að viðhalda sterkri krónu. Ég held að besta lausnin fælist í því að Ísland myndi samþykkja áætlun IMF fyrir íslenskan efnahag en afþakka fjármagnið. Áhættan er mikil að IMF peningunum verði sóað. Forsætisráðherra ætti að tilkynna IMF að íslenska ríkið samþykki áætlunina en ekki fjármagnið.“

Og prófessor Aliber í nóvember:

"Það er makalaust hversu oft fólk sem veldur kreppum heldur að það sé rétta fólkið til að leiða þjóðir út úr þeim,"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Lifi lýðveldisbyltingin. Þið verðið að leiða saman hesta ykkar og sameinast í einni fylkingu.

Þá er ég með.

Vilborg Traustadóttir, 30.1.2009 kl. 15:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband